9.4.2010 | 21:06
Hlaupið í suðaustanstrekkingi
Um þetta var rætt og margt fleira í Brottfararsal fyrir hlaup dagsins, m.a. afmæli Magnúsar hér um daginn. Fámennt en góðmennt, og var Denni af Nesi mættur. Auk hans Flosi, Ágúst, Björn, Ósk, Jörundur, Ólafur ritari, Þorvaldur, Rakel (kom síðar), Magnús - líklega ekki fleiri. Nú var frelsið algjört, og fengum við að ráða okkur að öllu leyti. Parísarfarar farnir og þreyta hlaup sitt á sunnudag, við munum fylgjast með.
Ákveðið að fara bakgarða í 107 enda langt síðan að það var gert síðast. Vindur á suðaustan og því ágætt að fresta því að takast á við mótvindinn. En ekki var því frestað lengur að fara í stríð er komið var út á Suðurgötu. Þetta var leiðindastrekkingur til að byrja með, en þegar komið var framhjá Dælu brast á með slíkum strekkingi að það var meiriháttarmál að halda áfram. En við helztu drengirnir fengum skjól af Ósk sem hljóp eins og herforingi á þessari leið. Erfitt og leiðinlegt hér. Við hefðum viljað hafa almennilegan snjóstorm i staðinn, að ekki sé talað um sandrok eins og var hér um árið þegar maður mætti sandblásinn tilbaka eftir hlaup.
Jæja, það var Hi-Lux og brekka. Við vorum þarna prófessorinn, Flosi, Björn, Ósk og ritari - aðrir eitthvað aðeins á eftir okkur. Svo var gefið í og farið um Veðurstofu, Söng- og skákskólann, Klambratún og þá var brostið á logn. Hlemmur og Sæbraut. Þá hafði undirritaður dregist aftur úr - sem var allt í lagi því að tempóið var allhratt.
Komið tilbaka til Laugar og teygt á Plani. Þá kom þar að Rakel, sem hafði misst af upphafi hlaups. Pottur og galgopaháttur. Lögð drög að Fyrsta Föstudegi. Þorvaldur bað um frestun, en ekki var unnt að koma til móts við óskir hans. Menn voru einbeittir í því að láta ekki dragast frekar að halda hátíð í hópi vorum, ekki er vanþörf á.
Eftir hlaup var steðjað á Ljónið og innbyrtir ljúffengir borgarar og mikið drukkið með. Valinkunnir hlauparar mættir og voru lögð drög að frekara skemmtanahaldi.
7.4.2010 | 21:22
Farið langt með einum alvitlausum
Það var Víðimelur og það var Dæla, við helztu drengirnir og Ósk héldum áfram, en þau hin ætluðu að sprikla í sprettum og enda á e-m 8 km. Jæja, hvað gerist við flugvöll? Kemur ekki S. Ingvarsson hlaupandi á móti okkur alhress, líklega búinn að hlaupa að heiman úr Grafarvogi, snerist á sveif með okkur og sneri við. Þeir skildu ritara fljótlega eftir einan og var það að líkendum: okkar maður bæði þungur á sér eftir páskana, illa sofinn og án næringarvökva. Auk þess hafði verið farið óþarflega hratt út.
Það verður að segja prófessor Fróða til hróss að hann fór hvers kyns þríhyrninga og lykkjur til þess að koma til móts við hæga ferð ritarans, en allt kom fyrir ekki, þeir hreinlega gátu ekki farið svona hægt yfir. Þeir voru tveir saman, prófessorinn og Tom. Varð það sögulegt. Hlutverk prófessorsins var það að halda aftur af hinum, sem átti það til að rjúka af stað á spretti í miðju hlaupi þegar átti að fara jafnt og rólega yfir. Þá átti hann til að henda sér niður á tvo fingur og taka tuttugu armbeygjur. Hann vildi fara þrjátíu, prófessorinn gekkst inn á að fara 24, upp að Stíbblu um Goldfinger eða þar um bil.
Jæja, ég náði þeim við Víkingsvöll og við lögðum í brekkuna góðkunnu. Hún er gamalkunn og erfið. En maður þrælaðist þetta og hélt áfram framhjá Goldfinger, undir Breiðholtsbraut, en sneri svo niður í Elliðaárdal í stað þess að fara upp í Breiðholtið og þá leið. Ég fann að ég myndi ekki klára meira en 20 í dag. Mætti fullt af hlaupurum, bæði í Fossvogi og í Elliðaárdal, þekkti einungis Sif Jónsdóttur langhlaupara.
Til að gera langa sögu stutta skal viðurkennt að þetta reyndist afar erfitt hlaup af framangreindum ástæðum, auk þess sem það kólnaði þegar leið á kvöld og það varð erfiðara að fá fæturna til að hlýða. Lauk 20 km hlaupi á rúmum 2 tímum og var dauðþreyttur á eftir. Teygðum vel í Móttökusal og hittum Benzinn þar, sem hafði enga skýringu á veru sinni þar, því ekki var hann að hlaupa. Meiri tiktúrur í Tom og heyrði ég það seinast og sá til þeirra prófessorsins, að prófessorinn var kominn niður í armbeygjur og hinn byrjaður að djöflast í honum með að styðja fæti á bak honum og prófessorinn hrópaði: "Nei, enga vitleysu, Tom!"
Á föstudaginn er kemur er Fyrsti Föstudagur samkvæmt réttu tímatali Hlaupasamtakanna. Hvað menn athugi.
3.4.2010 | 15:48
Síðustu sprettir fyrir París
Hópur hlaupara mættur í Brottfararsal, flestir á leiðinni til Parísar, og ætlunin að taka stutta æfingu með sprettum til upprifjunar fyrir maraþonið í París um næstu helgi. Þarna voru líka tveir hlauparar í aukahlutverki, ritari Samtakanna og Þorbjörg hans Rúnars. Veður var eins og best verður á kosið á þessum árstíma: stillt, hlýtt og uppstytta. Eflaust hefur það villt um fyrir mörgum að það snjóaði í gær, en í reynd voru slík hlýindi í dag að það mátti hlaupa húfulaus og í þunnum bol.
Ákveðið að streyma eftir Sólrúnarbraut austur að Kirkjugarði og var ekki erfitt að sjá getumun á hlaupurum og ljóst að sumir eru tilbúnir að þreyta maraþon að viku liðinni. Samt fórum við Þorbjörg allhratt yfir í dag og má segja að við höfum haldið okkur nálægt fimm mínútna tempóinu. Náðum hópnum við Kirkjugarð þar sem þau stoppuðu, við héldum áfram, en þau fóru tilbaka og á Nes, enduðu með 8 km spretti vestur úr. Við Þorbjörg fórum hefðbundinn sunnudag og var þetta ný leið fyrir henni. Það var óneitanlega skrýtið að fara þessa leið á þessum hraða og staðnæmast hvergi. Þó var haldið í þann hluta hefðarinnar að segja sögur og ræða málin.
Við Laug sagði mér blómasalinn að hann hefði hitt Ó. Þorsteinsson við flugvöll og sá hefði viljað upphefja mikið samtal um landsins gagn og nauðsynjar, en blómasalinn varð að banda frá sér og segja að hann mætti ekki vera að þessu. Brást Ólafur þá hinn versti við og hrópaði: "Hvuss slags er þetta eiginlega!?" Mætti segja mér að frændi hafi í framhaldinu veifað gula spjaldinu fyrir þessa ósvífnu framkomu - þetta er náttúrlega under sygekassegrænsen í mannlegum samskiptum.
Næsta hlaup: hefðbundið sunnudagshlaup á annan í páskum kl. 10:10 frá Laug. Spurning hvort ekki verði tekinn snarpur hringur til heiðurs Magnúsi Júlíusi sextugum, og heiðurshringurinn kórónaður með aukinni næringu gróðurs á Óttarsplatz.
Pistill Ritara | Breytt 4.4.2010 kl. 10:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.3.2010 | 21:33
Jörundur er ekki vinalaus aumingi - sex hlupu honum til heiðurs 69
Jörundur fékk afmælisgjöf frá dóttursyninum sem hann valdi sjálfur. Hann var vakinn með pakka í morgun. Þegar pakkinn var opnaður kom í ljós púsluspil með 1000 bitum. "Þetta er mjög gott fyrir þig," sagði sá stutti. "Þetta þjálfar nefnilega heilann."
Mönnum voru ofarlega í hug góðar óskir sem streymdu að í allan dag til Jörundar og hlýnaði mönnum einkum um hjartarætur yfir þeirri vinsemd og vinarþeli sem ónefndur álitsgjafi í Garðabænum sýndi afmæliisbarninu. Eru vonir bundnar við að þetta séu fyrstu teikn um þíðu í samskiptum og að áður en langt um líður verði gamlir vinir farnir að hlaupa með okkur á ný.
Parísarfarar ætluðu bara stutt í dag og skilst mér að þeir vildu sprikla eitthvað í Öskjuhlíðinni. En það voru einbeittir menn sem settu stefnuna á 69 og Jörundur þar í fylkingarbrjósti, eða þannig. Að vísu skal viðurkennt að tvær grímur voru á Magnúsi Júlíusi alla leið inn að Kringlumýrarbraut. Greinilegt var að litli lati kallinn í höfðinu á honum hamaðist á fullu við að brjóta niður allan vilja til langhlaupa og Magnús fór að spyrja Jörund hvort hann ætlaði virkilega langt í dag. "Viltu ekki frekar fara stutt með mér, fara Suðurhlið?" Nei, Jörundi fannst það ekki nógu gott á svo ágætum degi. Það skyldi farið yfir brúna á Kringlumýrarbraut. Hér gat Magnús ekki snúið við eða farið einn Suðurhlíð svo að það varð ekki hjá því komist að halda áfram.
Ekki var heldur fýsilegt að fara upp brekkuna hjá Bogganum, og við sögðum Magnúsi að þegar komið væri í Fossvogsdalinn væri þetta nánast búið. Hann tók það gott og gilt og hélt áfram með okkur. Það var trimmað inn dalinn og skiptust menn á að hafa forystuna, prófessorinn með krók í Kópavoginn. Mættum félögum í Laugaskokki en þeir voru ekki mjög margir á ferð í kvöld. Haldið áfram hefðbundið hjá Víkingsheimili og niður að Elliðaám, yfir í hólmann.
Síðan var farið í Laugardalinn og fóru menn ýmsar leiðir þar. Hjá kirkju og niður á Sæbraut. Beðið eftir afmælisbarninu, en þegar það lét ekki sjá sig var haldið áfram og gefið í. Geta fróðir menn sér til að meðaltempóið í dag hafi verið 5:40 eða því sem næst. Svo var farið um miðbæinn, um Hljómskálagarð og hjá háskóla. Fámennt að Laugu við lok hlaups. Þar fór fram vísindaleg umræða um bóseindir sem verið er að framleiða í evrópskum hraðli.
Hvað gerist næst? Boðið er upp á samskokk frá Árbæjarlaug laugardaginn 3. apríl kl. 9. Ennfremur munu framsæknir menn í Vesturbænum hlaupa hefðbundið sunnudagshlaup þann sama dag frá Laug kl. 10:10.
Pistill Ritara | Breytt s.d. kl. 23:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.3.2010 | 20:36
Lifað á háskalegum tímum
Jæja, það var Víðimelur og Dæla. Blómasalinn fór 30 km á laugardag og í tvær ferminarveizlur á eftir. Við vorum nokkur sem ræddum saman um þær hættur sem framundan eru og helgast af því að nú eru bæði fermingarveizlur í fullum gangi og páskar framundan, sem sagt brauðtertur og páskaegg. Hvernig fer þetta? Töldu menn líklegt að hringt væri í fermingarbörn í Vestbyen og eftirfarandi díalóg færi fram: "Halló?" "Já, sæll og blessaður, góði minn. Þetta er hann Einar frændi þinn." "Ha, hver?" "Einar Þór, frændi þinn, manstu ekki eftir mér?" "Nei." "Jú, við erum fimmmenningar og ég var að frétta að það væri ferming framundan hjá þér..."
Farið rólega út að Skítastöð, síðan stilltu Parísarfarar sér upp til spretta, aðrir máttu ráða hvað þeir gerðu. Hér er greinilega komin stéttskipting á í röðum Hlaupasamtakanna og þeim skipað í yztu myrkur sem ekki leggja metnað í að hlaupa maraþon á miðjum vetri. Jæja, þau strituðu eitthvað þarna á stígunum, en við hinir fórum sem leið lá vestur á Nes, ritari fór alla leið út á Lindarbraut, Ágúst fór fyrir golfvöll, Benzinn og Kalli í Skjólin, Flosi og Jörundur á Eiðistorg, aðrir eitthvað skemmra. Það var fínt að hlaupa á Nesinu, alls ekki kalt og í raun ekkert mikill vindur. Þetta var í reynd bara hressandi og gekk vel, þrátt fyrir að þessi hlaupari hafi ekki hlaupið í viku. Kom sæll og glaður til Laugar og heyrði á mæli Parísarfara þar sem þeir plottuðu um að eta saman hádegisverð á morgun á leyndum stað, bara ekki bjúgu, sagði einhver.
Er nú að geta þess hvað framundan er. Á miðvikudag verður Jörundur okkar 69 ára og verður af því tilefni hlaupið 69 honum til heiðurs. Á föstudag verður Magnús Júlíus sextugur, en þá er Föstudagurinn langi og allt lokað. Hefur Formaður Vor til Lífstíðar, Ó. Þorsteinsson Víkingur lagt til að hlaupið verði á laugardagsmorgun kl. 10:10 frá Laug til heiðurs Magnúsi. Er þeim möguleika komið á framfæri við hlutaðeigandi, en jafnframt minnt á langt hlaup frá Árbæjarlaug, samskokk hlaupahópa. Spurning hvort menn vilji halda upp á Fyrsta föstudag þarna upp úr hádegi á laugardag með brönsi. Pæling.
22.3.2010 | 20:27
Goshlaup
Ekki voru mjög margir mættir til hlaups og saknaði maður manna eins og prófessors Fróða, Þorvaldar, S. Ingvarssonar, Jörundar, Flosa og fleiri. Þó var bót í máli að dr. Friðrik var mættur og prúðmenni eins og Magnús Júlíus og Bjarni Benz. Þá heyrir til tíðenda að Biggi var mættur eftir langa fjarveru. Svo voru nokkrir til viðbótar.
Hópur dagsins skiptist nokkurn veginn í tvennt, Parísarfara og hina sem heima sitja. Það voru sprettir og það var rólegt. Farið hefðbundið út á Suðurgötu og í Skerjafjörðinn. Þar kom Biggi með yfirlýsingar um Svíþjóð sem ég sá ástæðu til þess að gera athugasemdir við. Þær þurfti að kalla með krafti í gegnum einhvern óskilgreinanlegan hávaða sem Benzinn framkallaði af annarlegri þörf fyrir að gera Bigga gramt í geði.
Sprettir stöldruðu við Skítastöð, en við hin héldum áfram og fórum Hlíðarfót. Ritari var með eindæmum þungur á sér og með tak í vinstra læri að auki, svo maður gerði engar rósir í dag. En enn dapurlegra ástand var á blómasala sem átti að fara 100 km í síðustu viku, en fór eingöngu 20. Hann fékk fyrirmæli um að fara Aumingja í dag til þess að starta sér að nýju.
Þetta var létt og löðurmannlegt hlaup í dag, en ágætur undirbúningur fyrir hlaup vikunnar.
20.3.2010 | 13:02
Hvers konar undirbúningur?
Á morgun, sunnudag, verður hlaupið hefðbundið 12 km sunnudagshlaup kl. 10:10 - verður þá af nægu að taka í umfjöllunum dagsins. Vel mætt!
15.3.2010 | 21:23
Hrekkjusvín herja á reiðhjólaeigendur í Vesturbænum
Hrekkjusvín hafa hreiðrað um sig í Hlaupasamtökum Lýðveldisins. Ekki einasta eru grandvarir heimilisfeður í Vesturbænum lagðir í einelti, þeim er strítt í það endalausa með hvers kyns fráleitum uppátækjum sem ganga úr hófi fram. Meira um það síðar í þessari frásögn.
Það verður nú barasta að segjast eins og er að þjálfarar voru aldeilis grallaralausir þar sem þeir stóðu á Brottfararplani og höfðu enga hugmynd hvað þeir vildu láta menn gera. Á endanum var fallist á að fara um Víðimel út að Skítastöð og þaðan á Nes. Mættur allnokkur fjöldi hlaupara. Jörundur var búinn að lesa DV með viðtali við prófessor Fróða sem bar þá hógværu yfirskrift: Maraþon er bara upphitun. Hér skín í gegn lítillæti og hógværð eins og Hlaupasamtökin eru einna helzt þekkt fyrir.
Sumir fóru 34 til 36 km í gær og voru því kærulausir í dag. Farið afar hægt af stað. Æ fleiri skarta nú frumgerð yfirvaraskeggs og fara Hlaupasamtökin smásaman að líta út eins og deild í Village People. Einhver þyngsli voru í mönnum , jafnvel leti, enda mánudagur og heil hlaupavika framundan.
Hlaupið út að Skítastöð eða þar um bil og þá snúið í vestur og lagt á Nesið. Þjálfarar vildu að menn tækju ca. 1 km sprett einhvern tíma á leiðinni. Ritari var ekki að nenna þessu og ætlaði bara Aumingja, 6 km, ljúka hlaupi við Hofsvallagötu. En svo fór blómasalinn fram úr honum á Ægisíðu og tók stefnuna á Skjólin. Þá var ekki undan því vikist að halda á Nes. Við Jörundur áttum samleið og svo voru einhverjir að dóla sér í kringum okkur, Þorvaldur, Flosi, blómasalinn. Jæja, kannski maður fari út að Eiðistorgi hugsaði þessi hlaupari.
Nei, nei, það var haldið áfram. Mættum Línu hans Magnúsar á Nesi og vörpuðum kveðju á hana. Hún spurði hvar Magnús væri við sögðum sannleikann. Svo var bara haldið áfram, Benzinn og blómasalinn fóru í áttina að golfvelli, en við Jörundur fórum Lindarbraut og svo Norðurströndina tilbaka. Ég tók sprett einhvers staðar á leiðinni, líklega kílómetra eins og þjálfarar höfðu lagt fyrir, á tempóinu 4:40 eftir því sem Jörundur taldi.
Eftir pott kom ég út en fann ekki reiðhjólið mitt. Ég sá að blómasalinn og Benzinn voru eitthvað grallaralegir, og á endanum benti blómasalinn á stað við hliðardyr Laugar þar sem fatlaðra merki er, þar var hjólið mitt og hafði einhver grallari fært það. Svona eru menn nú uppátækjasamir og spaugsamir á mánudegi í Hlaupasamtökum Lýðveldisins.
Ritari heldur á vit ævintýranna í útlöndum og hleypur að líkendum ekki fyrr en á laugardag.
14.3.2010 | 17:41
Kynslóðabilið - eða: Þeir kalla þetta jafnrétti!
Maður 2: hann kemur til Laugar klukkan að verða hálffimm, dauðþreyttur eftir erfiðan dag í vinnunni, nær að slíta af sér reyfið og troða sér í hlaupagírið, fer hring með félögunum. Kemur heim til sín upp úr sjö, þar situr frúin í stofunni og les tímarrit, krakkarnir sitja glorhungraðir við eldhúsborðið og hamra með hnífapörum í borðplötuna og grenja: pabbi, hvenær kemur maturinn. Maðurinn hendir frá sér dótinu sínu, drífur sig beint í að laga kvöldverðinn, gómsætan kjúkling með chutney og hnetum. Það tekur hann bara klukkutíma að galdra fram kóngafæði. Þegar hann er svo búinn að ganga frá öllu, sezt hann nður dauðþreyttur og spyr konuna: var eitthvað í fréttunum?
Þeir kalla það jafnrétti, eða eitthvað í þá veruna.
Svona voru andstæðurnar dregnar fram í hlaupi dagsins og ályktað sem svo að hlutskipti mannanna væri misjafnt. Allmargir mættir í Brottfararsal. Þarna mættu Benedikt, Eiríkur, Magga, Rúnar og Frikki að fara langt 35 eða þar yfir. Svo vorum við þarna sunnudagsklúbburinn undir stjórn frænda míns og vinar, Ó. Þorsteinssonar. Við vorum ritari, blómasali, Magnús, Þorvaldur og Jörundur. Það var setið og skrafað um stund um ýmis persónufræði áður en lagt var í hann. Magga kvaðst hafa farið út að hlaupa í gærmorgun kl. 9:30 og lokið eðllilegu hlaupi. Svo hefði hún farið að sinna sínum hefðbundnu helgarerindum og séð blómasalann enn þá hlaupandi um eittleytið - það hafi komið henni á óvart.
Þau hin fóru út og í stað þess að hefja hlaup settust þau inn í bíl og óku af stað, féleg byrjun á hlaupi eða hitt þó heldur! Hinir fóru af stað rólega, Einar búinn að fara eina 34 km í gær, en samt furðusprækur þrátt fyrir það.
Í tilefni Útsvars var eðlilega mikið rætt um Vilhjálm vin okkar og spurt hver hefði síðast heyrt í honum. Einna helzt er að Ólafur Þorsteinsson hafi fregnir af honum, en enn hringir síminn á Kvisthaga þegar stórtíðindi eru. Um daginn var t.d. hringt í tilefni afmælis og spurt: jæja, fer þetta ekki að verða búið hjá þér? Það var rætt af trúnaði og einurð um ýmisleg málefni, en þess jafnan gætt að ekkert færi út fyrir hópinn eða kæmist í almæli. Stoppað í Nauthólsvík og sagðar sögur.
Magnús og Þorvaldur þreyttust á okkur í kirkjugarði og hlupu áfram án þess að stöðva til þess að njóta hefðbundinnar sögustundar þar. Nú var ekki meira með það nema hvað á Klambratúni var farið að leita að trénu hans Magga og voru menn ekki á eitt sáttir um hvaða tré það væri. Næst gerist það að við nálgumst Svörtuloft. Jörundur staðnæmist við hornið og þar er stór pollur á götunni. Ég hélt menn væru meðvitaðir um hann. Ég hrópa til Jörundar að passa sig á honum. Jörundur glottir. Ólafur frændi minn er á undan mér og stoppar hjá Jörundi, en Jörundur færir sig lítið eitt til hliðar. Í sömu svipum kemur bíll akandi hjá og fer beint ofan í pollinn svo að gusan stendur yfir persónu Ólafs Þorsteinssonar alla. Hann snýr sér örsnöggt undan og sleppur við versta vatnsganginn, en fær samt eitthvað á sig. Sáu menn nú hvað fyrir Jörundi vakti: teyma Ólaf í gildru og láta hann taka á sig mikið vatn. Jæja þarna stöndum við og virðum fyrir okkur járnskúlptúrinn á Tónlistarhúsinu sem verið er að skrúfa saman. Þegar því er lokið verður glerinu komið fyrir. Þetta er allt að koma.
Nú var rætt um sumarferðir. Ákveðið var að efna til árlegrar göngu Hlaupasamtakanna einhvern tímann í júli og fara um Laugaveginn - bjóða fjölskyldum með okkur ef áhugi er til staðar. Fararstjóri verður Jörundur Guðmundsson. 2-3 daga ferð með tjöldum og öllu. Enda í Þórsmörk þar sem blómasalinn stendur fyrir grillveizlu.
Ánægjuleg og fróðleg stund í potti. Þar söknuðu menn þó Helgu Jónsdóttur Zoega Gröndal, sem mun vera lasin heima. Auk hlaupinna voru þar dr. Baldur, dr. Einar Gunnar og Stefán verkfræðingur. Næst hlaupið á morgun, mánudag. Vel mætt!
12.3.2010 | 21:22
Skeggsöfnun stendur yfir - framlög óskast
Jæja, blómasalinn slapp við líkamsmeiðingar í þetta skiptið, en það mátti litlu muna. Er inn var komið mætti ritari Bjössa kokki. Við horfðum ánulega hvor á annan, báðir að safna yfirvaraskeggi í þágu krabbameinsleitar í eistum karla. Björn hefur fengið meinlegar athugasemdir heima fyrir út af "burstanum" sem hann er kominn með, en ritari getur bara upplýst um almenna aðdáun og ánægju á sínum fronti. Hins vegar er óvíst hvort þeir minna frekar á Pólverja eða Village People. Farið út í Útiklefa og klætt sig. Þar voru Benzinn, Bjössi, blómasalinn og ritari - og þar ríkti einskær gleði. Í Brottfararsal bættust við prófessor Fróði, S. Ingvarsson, Ragnar, Jörundur, og fleiri, samtals 10 hlauparar. Jörundur gat upplýst um það að hann væri sannkallaður lífgjafi. Í dag hefði hann komið heim og við blasað lögregla að stumra yfir meiddum ketti. Löggan gerði sig líklega til þess að moka kettinum upp með kíttispaða og fjarlægja hann, en Jörundur greip inn í og kvaðst þekkja þennan kött. Þetta væri köttur nágrannans. Tók hann köttinn í sína vörzlu og færði Birgi og fjölskyldu köttinn síðar. Er þetta sami aðili og hefur árum saman migið og skitið undir pallinn hjá Jörundi og framtak hans þeim mun merkilegra. Síðdegis hafði svo Biggi samband og sagði að kötturinn væri að braggast.
Jæja, þetta átti nú ekki að verða frásögn af köttum, en stundum æxlast samtöl bara svona. Jörundur var ánægður með dagsverkið og gat vel við unað. Föstudagur og við fáum að ráða okkur sjálf. Áður en við náðum að hafa okkur af stað kom Melabúðar-Frikki á Plan og veifaði flösku með bleikum orkuvökva. Einhverjir þefuðu af drukknum, en töldu innihaldið ekki til þess fallið að efla styrk og þrótt fyrir hlaup. Frikki ætlaði aldrei þessu vant að fylgja fyrirmælum sjúkraþjálfara og hvíla sig. Við dóluðum okkur af stað og fórum niður á Ægisíðu. Veður áfram hreint með eindæmum, hiti 7 stig, nánast logn og uppstytta.
Það var ung stúlka með í för í dag sem ég hef ekki nafnið á, en hún virtist viðkunnanleg og vel hlaupandi. Höfðum við hinir betri hlauparar fullt í fangi með að gæta hennar fyrir óvandaðri hlaupurum. Hópurinn skiptist fljótlega upp samkvæmt venju, og vorum við hinir skárri hlauparar í fararbroddi, ritari, prófessor Fróði, S. Ingvarsson, Benzinn og stúlkan. Fórum á á að gizka 5 mín. tempói og jukum bara í ef eitthvað var. Aldrei þessu vant var lítið rætt um áfengi, en það er annars aðalumræðuefnið á föstudögum. Eitthvert lítilræði af baktali og illmælgi, en allt í góðu og velmeinandi ásetningur að baki. Spurt var: hvar er Flosi, hvar er Þorvaldur? En þessir hlauparar hafa ekki sézt mikið alla vikuna.
Farið hefðbundið um Hi-Lux og brekkan góða tekin léttilega. Sigurður týndur. Við áfram um kirkjugarð og upp í hverfið hjá Öskjuhlíðarskóla. Veðurstofa, Saungskóli og þau dæmi öll. Sigurður fundinn. Við skiptumst á að hafa forystuna, ritari, prófessorarnir, Benzinn og stúlkan, en þegar komið var að Blindraheimilinu þá hurfu þeir fremstu og ritari fór að herða hlaupið. Hér var tempóið anzi hratt. Farið sem leið liggur yfir Miklubraut (biðum óþarflega lengi á ljósum) og áfram um Klambra. Hlemmur og Sæbraut og þannig áfram. Þegar ritari kom á feiknarhraða suður Hofsvallagötu mætti hann Rúnari þjálfara og Benedikt hlaupara, aldeilis grallaralausum og hortugum, þeir reyndu að hefta og trufla för ritara með óforskömmugheitum, en hann rétti út járnhnefann og þeir heyktust á hrekkjunum.
Það er alltaf gaman í potti þegar líður á vor, nú varð óvenjufrjó umræða um matargerð, enda meistarakokkurinn Bjössi á staðnum, og áhugakokkurinn Einar ekki langt undan. René mætti í pott óhlaupinn og gat bætt í umræðu um mat, enda ættaður frá Toskana-héraði á Ítalíu. Menn lögðu drög að matseðlum kvöldsins, sem hljómuðu hver öðrum áhugaverðari. Í fyrramálið munu einhverjir hlaupa langt, aðrir fara á sunnudag. Nú er toppað, lágmark 35 km. Er þetta ekki frábært?