Færsluflokkur: Pistill Ritara
11.4.2008 | 23:44
Hamingja er heit byssa, kindabyssa
Ég varð þess áskynja í kvöld er ég gekk inn í Haðkaup að ég var skælbrosandi. Þetta uppgötvaði ég þegar ég sá fyrirlitningarsvipinn á fólkinu sem ég mætti, sá að það hugsaði: "Hvaða bölvað aulaglott er þetta á þessu fífli!" Mér var í sjálfu sér sama, en fór svo að velta því fyrir mér hvers vegna ég brosti svona og komst að því að það væru hlaupin sem veittu manni þessa innri gleði, og fannst að aðrir mættu vera fúlir þumbarar mín vegna. Hlaupin eru undirstaða vellíðunar og hamingju. Meira um það síðar í pistli dagsins. Það var sumsé hlaup.
Fáir mættir í dag, enda hvorki Fyrsti Föstudagur né boðið upp á langhlaup. Þó voru þrjú af Nesi: Rúna, Brynja og Friðbjörn. Aðrir: dr. Jóhanna, Ágúst, Friðrik, Eiríkur, Birgir og ritari, og Flosi á hjóli. Eiríkur bættist við um það er við lögðum í hann. Þegar í upphafi safnaðist drjúgum í sarpinn fyrir pistil, svo voru svívirðilegar athugasemdirnar sem flugu. Friðrik horfði í kringum sig og leitaði að heppilegum hlaupafélaga og virtist kjósa einhvern sem færi ekki mjög hratt og hafði um það orð sem ekki verða höfð eftir af virðingu fyrir starfsframa hans og fjölskyldu. Hlaup auðga málið, það er talað um olíuskip og briggskip, og má hver leggja þann skilning í sem við á. Brynja viðhafði langa orðræðu um hin löngu hlaup Hlaupasamtakanna, og úthald og þrek félaga sem færu svo langt með litlum fyrirvara eða undirbúningi. Við fórum hjá okkur við allt þetta skjall, ekki vön því að talað sé vel til okkar - þau eru öðruvísi á Nesinu.
Þungar áhyggjur af blómasala. Birgir sagði okkur þá sögu. Að vísu hafði ritari hitt hryggilega mannsmynd, ef mann skyldi kalla, í morgunklefa. Þar var persóna sem vart gatt veitt sér nokkra björg, svo illa farinn á baki að hann átti í mestu erfiðleikum að klæðast. Birgir er sannur vinur í raun, byrjaði daginn á að fara í abótekið og kauba Íbúfen600Forte og koma færandi hendi; fljótlega eftir afhendingu bar hann blómasalann út í bíl sinn og ók honum til sjúkraþjálfara, Togga Óskars, gamals æskufélaga okkar Flosa bróður, bróður þeirra Summa og Habba geitur og þeirra bræðra. Sjúkraþjálfarinn taldi lítið hægt að gera og vildi láta lóga fyrirbærinu, fór að gramsa í dótinu sínu í leit að kindabyssu. Það spratt út sviti á enni Birgis, hann varð örvæntingarfullur, og spurði: "En..., verður það ekki vont?" "Vont? Nee, það er svo lítill heilinn í þessu." Birgir beið meðan blómasalinn var athugaður, en lét sig svo hverfa, áhyggjufullur um að þurfa að bera kostnað af framkvæmdinni.
Ríkulega hafandi í huga hið dapurlega ástand félaga vorra lögðum við hægt af stað í dag, lá ekkert á, enginn Benni, og sumir með strengi eftir miðvikudaginn. Veður bærilegt, sólskin, hiti 7 gráður en vindur mótstæður, líklega á norðaustan. Hugsuðum okkur gött til glóðarinnar, fengjum alla vega bakstæðan vind á heimleið. Á föstudögum færist talið jafnan að klámfengnum hlutum og áfengi. Svo var og í dag á Sólrúnarbraut, áður en maður vissi af voru hlauparar dottnir ofan í lágkúrulegar umræður um æxlanir, júgursmyrsl og annað á þeim nótum. En sem betur fór voru ábyrgir aðilar með í ferð svo að áður en vandræði hlutust af var farið að þétta; upp Hi-lux var þétt, það var góð tilfinning. Áfram um Veðurstofuhálendi (Ágúst sagði: "þessi áhugasami krakki úr Hagaskóla ætlar greinilega að fylgja okkur, hann er voða einbeittur!" - ég skildi ekki hvað hann átti við). Hlíðar, MH, Langahlíð með sinni trafík, yfir á ljósum, (hugsað til Þorvaldar), tekinn þéttingur á Klömbrum, staldrað við á Othar´s Platz og málin krufin. Athyglisvert var að sjá Birgi koma síðastan úr þéttingi, feitan, þungan og dapurlegan - Nesverjar reyndu hvað þeir gátu, en höfðu lítið að segja í okkur alvöruhlauparana í Hlaupasamtökum Lýðveldisins, sem hlaupum reglulega með leiðsögn þjálfara, og förum langt, í sjóinn þegar þannig liggur á okkur.
Á Óttarsvöllum sagði Ágúst að Hagskælingurinn væri enn með okkur, ég leit í kringum mig og sá ekkert, hélt að prófessorinn væri með óra. Þarna leið okkur vel, héldum áfram á góðum hraða út á Sæbraut og þéttum eftir Sólfarið, byggingaverkamenn á heimleið um miðjan daginn, svartsýni um verklok Tónlistarhúss. Það var tempó, það var þétt, og ekkert gefið eftir. Aftur þéttingur upp Ægisgötu, eftir Ránargötu. Og svo rólega eftir það til loka. Einhvers staðar um þetta leyti sagði Ágúst, og benti á Flosa bróður, sem fylgdi okkur alla leið á hjóli: "Strákurinn úr Hagaskóla gefst ekki upp, hann fylgir okkur eftir." Þá loksins varð mér ljóst að hann var allan tímann að tala um Flosa.
Sem fyrr var sagt þéttingar á réttum stöðum, og áður en maður vissi af stefndi að hlauplokum, lokum hlaups, sem er niðurdrepandi staða í miðju hlaupi, Hamingjan blasti við okkur á Hofsvallagötu, ég heyrði tuldrið í þeim af Nesi að baki mér, og fannst einkennilegt að þau skyldu hafa náð okkur alvöruhlaupurum eftir þessa Þéttinga. Þau ræddu mjög um þær framfarir sem hlauparar Hlaupasamtakanna hefðu sýnt upp á síðkastið, bæði í lengd og tempói. "Hvernig ferðu að þessu, Ólafur, hvað gerið þið til þess að ná þessum árangri, þú ert orðinn slíkur ofurhlaupari, við skiljum ekki hvað hefur gerst." Ég varð eðlilega glaður að heyra þessi orð, en gætti þess að ofmetnast ekki. Þótti gott lofið.
Á Brottfararstétt var mætt Sif Jónsdóttir, langhlaupari, nýkomin úr Parísarmaraþoni á tímanum 3,28 eitthvað, sem sagt undir 3:30 - menn óskuðu til hamingju. Benni sást á stétt, en gerði stuttan stanz og sagði fátt. Þeir áttu spjall saman Kappaflingsmenn - þegar ég kom upp úr potti eftir langt spjall um áfengi og veikindi - hitti ég Kára, óhlaupinn, hann hafði látið glepjast af ráðstefnum og rauðvíni. Ég fór að ræða um hlaup dagsins, lýsti hamingjunni sem fylgir því að hlaupa í góðu veðri, hann bað mig að hætta, hafði hugsað sér að hlaupa, en gat ekki.
Talið barst að veikindum, sem við fyrstu sýn virðast vera líkamlegs eðlis, og 600 mg af Íbúfeni gætu hugsanlega virkað á - en sýna sig svo að vera andlegs eðlis. Íbúfen virkar ekki á slíkt. Menn þurfa að leita annarra lausna.
Hlaup kvöldsins gott, hamingjan blasir við hlaupnum hlaupurum - Yndisslegt! Fleiri hlaup bíða. Í gvuðs friði. Ritari, aðalritari.
9.4.2008 | 22:40
Fyrsti Goldfinger ársins - Stíbbla - fallegt
Það er sönnu næst að íbúar Vesturbæjarins hafa rekið upp stór augu þegar hópur hlaupara lagði upp í langhlaup frá Vesturbæjarlaug um kl. 17:30 í dag, því að sjaldan hefur sést fegurri sýn á þessum slóðum. Sjaldan hefur verið saman kominn á einum stað jafnglæsilegur hópur vakurra hlaupara, gáfaðra, skemmtilegra og fallegra. Fróðir menn töldu að meðalgreindarvísitala hefði slegið öll met, enda voru bæði próf. Fróði og próf Flúss hlaupandi, auk margra annarra vel gefinna einstaklinga sem lyfta meðalgreindinni til vænlegri hæða. Eftir því var tekið að land er að rísa að því er varðar þátttöku kvenna í hlaupum, og fjölgar kvenhlaupurum hægt, en örugglega.
Mjög góð mæting og mikil eftirvænting, því að miðvikudagshlaup eru löng hlaup, og ef vel ber í veiði, sjóbað. Þjálfarinn las okkur pistilinn og útskýrði hættur þess að lengja of skarpt. Menn hlýddu á hann af forvitni, en maður tók eftir tómum andlitum sums staðar - enginn heima. Reglan er: 10% lenging milli hlaupa - Ágúst var forviða á þessum vísindum: er það ekki allt of lítið? Við lengjum yfirleitt um 30%. Þjálfarinn sagði að slíkar lengingar myndu bjóða heim hættunni á meiðslum, en maður sá að í reynd var hann að hugsa: Þvílíkir fábjánar!
Það var sumsé langt í dag og því farið afar hægt út. Nú gerðist hið óvænta: alþekktir hraðavitleysingar og tempótætarar héldu sig á mottunni og voru rólegir. Dagurinn var afar sérstæður, hiti 5 stig, sólskin, bjartviðri, og algjört logn. Fallegra gerist það ekki! Menn héldu hópinn lengi vel, þótt hann skiptist upp í ólík getustig og einhverjir hlauparar rækju lestina á hægri ferð. Flosi fór fremstur á gamalkunnu stími og leit hvorki til vinstri né hægri - fór Hlíðarfót eftir því sem best varð séð. Magnús fór Suðurhlíðar á góðum hraða - aðrir héldu áfram í fyrsta Goldfinger ársins. Það voru Ágúst, Benni, Bjarni, Bjössi, Helmut, dr. Jóhanna og ritari. Þjálfarar fylgdu okkur eftir og létu tilleiðast að koma með okkur í Fossvoginn. Enn fórum við fetið, en eitthvað fóru menn að ókyrrast, hefur þótt hægt farið. Skyndilega var mættur í hópinn prófessor af Keldum á rauðri treyju og vakti mönnum ugg í brjósti að nú væri miskunn gvuðs dáin. Hér eftir yrði tekið á því.
Hlauparar tóku stefnuna á Kópavog, upp úr Fossvoginum, allir nema þjálfararnir, þeir hafa líklega farið Stokk eða eitthvað álíka. En við hin héldum áfram þennan erfiða kafla upp í Smiðjuhverfi og þá var manni farið að líða vel. Framhjá Goldfinger án þess að stoppa og yndir Breiðholtsbrautina, þar rákumst við á pörupilta sem voru að spreyja undirgöngin, framtakssöm æska! Yfir í Breiðholtið, þar sem móðir próf. Fróða býr, og svo áfram upp í holtið og svo yfir í Elliðaárdalinn. Manni þótti hálfleiðinlegt þegar kom að Stíbblu - þá voru komnir 13 km og bara heimferð eftir. Enn leið okkur bærilega, en nauðsynlegt var að bæta á sig vökva. Ágúst og Benni héldu áfram upp á Árbæjarlaug.
Heimferð hreint unaðsleg, niður hjá Rafstöð, yfir ár og svo skv. 69 um Laugardal og Sæbraut. Að hlaupi loknu voru allir sammála um að dagurinn hefði verið nánast fullkominn, hlaup einkar vel heppnað og fallegt. Stundin er meitluð í hug þeirra sem urðu þeirrar gæfu aðnjótandi að taka þátt. Ágúst og Benni komu nokkru á eftir okkur til Laugar og voru þrekaðir, hafði víst ekki gengið nógu vel hjá þeim. Líklega vegna þess að Benedikt mun hafa talað á leiðinni. Eða með orðum Ágústs (með undrun í röddinni): "Hann taaaalaði!" En áhyggjur Benna munu hafa aukist er hann sá próf. af Keldum mæta til hlaups - þá yrði farið að blaðra og það sleitulaust! Ágúst er þarna einhvers staðar á milli og reynir að íþyngja ekki þeim þögla með of miklu málæði, en vill gjarnan verða aðnjótandi fræðilegrar orðræðu kollegans á Keldum.
Við sátum pollróleg í potti og ræddum ýmis brýn málefni. Greinilegt er að menn eru byrjaðir að smjaðra fyrir Bjössa og reyna að læða inn þeirri hugmynd hjá honum að þeir komi sterklega til greina sem hlauparar aprílmánaðar. En eins og skáldið sagði: Apríl er grimmastur mánaða! Spyrjum að leikslokum.
Það er föstudagur. Það er hlaup. Það er list. Vel mætt!
7.4.2008 | 21:52
Þjáning, og meiri þjáning
Haldið af stað, það var vakur flokkur sem skokkaði af stað fjaðurmögnuðum hreyfingum út á Hofsvallagötu, maður fann til stolts að hlaupa innan um þennan fríðleiksflokk. Þjálfarinn hafði brýnt fyrir okkur að fara hægt til að byrja með, en hver tekur mark á svoleiðis löguðu? Ekki Benni, Eiríkur, Ágúst eða S. Ingvarsson. Nýkrýndur marzlöber, Björn kokkur, var þéttur enda sagður hafa tekið miklum framförum í hlaupum og mikill geðprýðismaður. (Þegar ég segi "þéttur", á ég auðvitað við einbeittur, eða eitthvað í þá veru.)
Tekið á því á Ægisíðu og alla leið út í Skjól, en ekki látið staðar numið þar, heldur haldið áfram á Nes. Ég lenti í slagtogi við dr. Jóhönnu og Helmut, það tók á að spretta úr spori á Ægisíðunni, en við vorum ákveðin í að halda áfram. Við Helmut tókum 14,1 km út á Nes og hjá Gróttu, líkt og einhverjir fleiri gerðu, aðrir fóru styttra. Það var erfitt að hlaupa þetta, og tekið út með þjáningu. Manni virtist aðrir hafa þjáðst álíka og við. Á Plani stóð fólk og teygði, ritari bar öll merki þess að hafa tekið vel á því á hlaupi - hann mátti vinda fatnað sinn, og brá þjálfara að sjá hversu hún hafði pískað mannskapinn áfram í kvöld, það örlaði á einhverju í augnkrókum sem virtist mega túlka sem samkennd með þjáningu annarra, þó þarf það ekki að vera, gæti hafa verið missýning.
Góður pottur á eftir. Næst er stefnt á enn lengra, Goldfinger og Stíbblu, en bara hægt. Í gvuðs friði, ritari.
6.4.2008 | 14:28
Hér þarf ekkert detox, enga stólpípu
Á meðan sat ritari í Brottfararsal og hafðist lítt að, beið þess að menn mættu. Birgir bauð blómasalanum frían tíma í jóga. Það hýrnaði yfir blómasalanum og hann spurði: Hvenær geturðu borgað mér?
Við brottför var varpað fram vísbendingaspurningu (ÓÞ) svo: Hvað er líkt með fermingarbörnum nútímans og Jesú Kristi? Svar: hvorugir flytja að heiman fyrr en á fertugsaldri. Hér var ÓÞ minntur á að hann hefði sjálfur ekki flutt að heiman fyrr en hann stóð á fertugu (án þess að það komi málinu nokkuð við, vísbendingin er góð eftir sem áður). Hlaupið var hefðbundið í einstakri veðurblíðu, algjöru logni, líklega um fjögurra stiga hita og sólskini; veður gerast ekki öllu fallegri í Vesturbænum. Hafflötur sléttur.
Ég sagði félögum mínum söguna af viðskiptum VB og lögmannsins fyrr um morguninn, en fór víst vitlaust með föðurnafn hans og það þótti ekki traustvekjandi. Guðmundur er fæddur 1917 og lenti bæði í Spænsku veikinni og Frostavetrinum mikla, er vel ern, sækir Laugar og rífst við Vilhjálm þegar honum sýnist svo. En ég gat einnig upplýst þá um það að Vesturbærinn státar af nýjum Íslandsmeistara í sundi, nánar tiltekið 400 m skriðsundi karla, sem er Gunnar Ólafsson, og er sonur minn. Það eru fleiri KR-ingar að gera garðinn frægan á Íslandsmótinu í sundi þessa helgi og geysilega gott starf unnið í sunddeildinni þessi missirin. Það er ekki hægt að óska barni sínu betri uppeldisskilyrða en íþróttaiðkunar af þeirri tegund sem fer fram í sunddeild KR. Þar eru metnaðarfullir og vel menntaðir þjálfarar, góðir sundfélagar, að ekki sé talað um þá ræktun líkama og sálar sem fram fer í íþróttastarfi.
En það er e.t.v. ekki skrýtið að miklir íþróttamenn spretti upp af slíkum íþróttaafreksmönnum sem vér erum, hlauparar í Hlaupasamtökum Lýðveldisins. Fólk bókstaflega fyllist öfund þegar það sér okkur skeiða um Sólrúnarbrautina og inn í Nauthólsvík, þar sem við stöðvum um sinn fyrir siðasakir og tökum upp léttara hjal. Ekki man ég til þess að sögur hafi verið sagðar í dag, en eitthvað kýtt um persónufræði. Það var hlaupið af stað á ný til þess að við trosnuðum ekki þarna á staðnum, farið í kirkjugarðinn og gengið hægt og settlega um hann. Á Hlemmi var það rætt að fara Laugaveginn. Nei, sagði Ólafur Þ. Þar eru öll hóruhús farin. Já, sagði frændi hans: Laugavegurinn er eins og brunnið indíánaþorp. En mér hafði hlakkað svo til að fara Laugaveginn, sagði Birgir. Okkur hinum varð ekki hnikað - áfram var stímt út á Sæbraut.
Þá tók við umræða um karlrembu. Sumir telja Ó. Þorsteinsson síðustu karlrembuna á Íslandi, aðrir kalla hann síðasta sjentilmanninn á landinu, manninn í Burberry-frakkanum og í klæðskerasniðnu, ensku tweed-jakkafötunum. Um þetta munu menn deila enn um sinn. Hitt var svo aftur rætt, sem er alþekkt staðreynd, að kjötmarkaði landsins er ekki lengur að finna á börum og veitingahúsum heldur í ferðahópum og hlaupahópum. Og það var hér sem við nafnar urðum alveg gáttaðir í umræðunni. Ef þetta er satt, spurðum við, hvernig í alverden stendur á því, að konur sækja ekki í meira mæli inn í Hlaupasamtök Lýðveldisins? Við horfðum með gáttu-svip hvor á annan og vorum alveg grallaralausir. Okkur var þetta alger ráðgáta. Aðrir voru ekki jafngáttaðir, og sögðu jafnvel að þetta væri engin gáta: það væru einfaldlega í hópnum menn sem fældu konur í burtu. Aftur var komið að okkur nöfnum og frændum að verða gáttaðir, horfðum hvor á annan og sögðum í spurn: hver getur það verið sem fælir frá? Ýmis nöfn voru nefnd, en ekkert fékkst uppgefið, ekki heldur hvort það væri af karlrembusökum sem konur hlypu ekki í meira mæli með okkur en raun ber vitni.
Hefðbundin stopp gerð á réttum stöðum og ýmis mál reifuð. Ekki er ég frá því, að þrátt fyrir langar göngur, hafi sviti gert vart við sig á yfirborði húðarinnar - en mikill var hann ekki. Pottur vel mannaður eins og venjulega, dr. Baldur, dr. Einar, Mímir, sómafrú af Hjarðarhaga er Helga heitir og maki hennar, Stefán. Og svo dúkkaði Jörundur upp, hafði hlaupið 15 km í Heiðmörkinni ásamt Gísla rektor Ármúlensis. Venju samkvæmt endurtók Ó. Þorsteinsson nánast allt sem sagt hafði verið á hlaupunum svo að viðstaddir fengju nú notið þess og misstu í engu af þeim gæðum góðrar frásagnar sem við hinir hlaupnu höfðum orðið aðnjótandi.
Næst er alvöruhlaup á morgun, mánudag, kl. 17:30, með þjálfurum. Í gvuðs friði, ritari.
Pistill Ritara | Breytt s.d. kl. 19:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.4.2008 | 21:44
Sögulegt hlaup og lærdómsríkt á föstudegi
Skeytin gengu milli manna fyrr í dag, og var ekki sátt um hvernig túlka bæri veðurútlit og -horfur, sumum fannst kalt þar sem þeir örkuðu milli húsa í Borgartúninu; öðrum fannst heitt þar sem þeir horfðu út gegnum glerið á glerhöllum sínum í sama Borgartúni, en þó voru allir samtaka í því að þreyta hlaup á þessum degi, og sýnir það að fleira sameinar oss en sundrar: við erum óttalaus andspænis náttúruöflunum og bjóðum Kára birginn. Svo skemmtilega vildi til að í dag voru bæði Kári og Birgir mættir, en auk þeirra þessir hlauparar (taldir upp í virðingarröð): Flosi (bróðir), Karl (kokkur), Jörundur (kom seint að vísu - og hlaup ekki fyllilega staðfest), dr. Jóhanna, Sjúl, Helmut, Rúna, Björn kokkur, Benedikt, Denni og ritari. Menn voru frjálsir af sér og miklar umræður urðu í Brottfararsal, furðuðust margir fjarveru þekktra hlaupagarpa, jafnvel heyrðist fleygt orðinu "sólskinshlauparar" - og fleira í þeim dúr. En alvarlegar ásakanir komu ekki fram fyrr en síðar.
Þjálfaralaus hlupum við af stað hefðbundið á þessum ágæta en kalda degi, sól skein í heiði, vind hafði lægt frá því fyrr um daginn, kalt. Fórum um Sólrúnarvelli og vorum glöð. Það brá svo við að Benni var rólegur, fremstir fóru svo ólíklegir karaktérar sem Kári og ritari. Þessir tveir horfðu hvor á annan og Kári sagði í spurn: "Talar hann?", ritara heyrðist það hljóma líkt og: "Andar líkið?" Ekki meira um það í bili. Er nær dró Nauthólsvík og fyrrgreindur ritari var enn í forystu og hafði aukið hana ef eitthvað var heyrði hann ekki betur en Benni TALAÐI - var þetta misheyrn? Hann spurði næsta mann. Sá staðfesti þetta. Ekki einasta heyrðist blaðurfulltrúinn mæla orð - hann raðaði þeim saman í setningar, prjónaði setningum hverri á fætur annarri saman í merkingarbærar heildir og er upp var staðið myndaðist orðræða sem var samfelld, gekk fram og tilbaka, snerist að vísu mest um bankamál, fjárfestingar, stöðu krónunnar og annað álíka áhugavert - en SAMT - maðurinn braut öll sín helztu prinsipp: blaðraði út í eitt án þess að skeyta um hlaup.
Það hvarflaði að einhverjum að biðja hann um að hætta þessu, lækka róminn, hugsa um hlaupin umfram málæðið. En slíkt nýnæmi og undur var þetta að upp spratt veðmál um hversu lengi þetta gæti staðið. Og það mátti svosem segja sér að bráður bugur yrði undinn að kjaftagangi: farið upp í Hi-Lux og svo sprett úr spori á þéttingi í Fyrsta í Ágústi, upp brekkuna. Er upp var komið sameinuðust Benni, Bjössi, Helmut, dr. Jóhanna, Sjúl og ritari um að halda áfram - ekki varð vart við aðra. Af þessum voru Bjössi og Helmut veikir (að sögn) - en ekki sást á frammistöðu þeirra að mikið amaði að þeim (hvernig eru þeir frískir, ef þeir hlaupa svona ófrískir, spurði einhver síðar; meira um það seinna).
Við Sjúl héldum í humátt á eftir hinum gegnum Veðurstofuhálendi og gáfum lítt eftir þótt þeir er á undan fóru væru eitthvað lítillega frískari en við. Við vorum þungir á okkur og eðlilega barst talið að mataræði undangenginna daga, sem var svona og svona. Vorum þó nokkuð góðir og héldum í við fremstu hlaupara. Þétt á Miklatúni, eftir bekkinn, svo sem skylt er skv. Ágústi. Ekki var stoppað á Othar´s Platz, en haldið áfram. Niður á Sæbraut og þá er hlaupi nánast lokið, lítið eftir. Hafnarsvæðið, Ægisgata og framhaldið þekkja allir. Þau ótíðindi urðu í Harmahlíð að hlaupari kom grenjandi og kannaðist maður við óhljóðin, var þar Birgir kominn og hefði verið mátulegt á þá báða, Birgi og Benna, að grúppa þá saman og dæma til sameiginlegs hlaups: Benna þegjanda og hinn með óhljóðum óstöðvanda.
Hvað um það, þéttu hlaupi lauk og var niðurstaðan 11,3 km á 5,30 hjá okkur Sjúl. Hlauparar fylltu barnapottinn og bættust við fyrrgreinda Anna Birna og Jörundur með hefðbundnar glósur um ríkisstarfsmenn sem geta hlaupið frá verki þegar þeim sýnist. Utandyra voru fluttar vísur, það voru þekktar þjóðvísur sem væntanlega allir kunna, en m.a. þessi:
Ill er þessi eistnagigt
ef hún festir rætur.
Böllurinn á þér, Benedikt,
bæði hlær og grætur.
Svo var ort um Ólaf:
Ólafur hélt um amboð sitt
amors brostu dróttir,
"Má ég leggja mitt við þitt,
María Guðmundsdóttir?"
Enn um Ólaf:
Ólafur knár við bryggjur bauga,
braust í hára skemmu inn,
felldi tár af einu auga,
á honum nára byzkupinn.
Ég tek fram að menn heimtuðu birtingu þessara vísna, og ýmislegan annan dónaskap, sem ekki verður orðið við. Birgir kvaðst þurfa að drífa sig heim, heima biðu dætur og kettir, klórandi gluggana að innan af hungri. Jörundur staðfesti að hann gæti ekki gert greinarmun á ýlfrinu í köttum og börnum.
Setið í potti um sinn og fram fóru mikilvægar umræður. Eftir það fóru flestir á Mimmann og var setið þar um stund. Þar mætti einnig ónefndur prófessor drafandi og framlágur eftir "vísindaferð" nemenda, þar sem prófessorum er skylt að mæta og drekka ótæpilega. Afhentur Marzlöber, í þetta skiptið var það Björn kokkur sem hreppti hnossið, að sögn "dómnefndar" vegna þess að hann hefði "sýnt framfarir" og fleira í þeim dúr. Prófessorinn púaði niður "dómnefndina" og kvaðst mundu grípa til örþrifaráða og leggja "löberhafa" í einelti næstu misserin. Aðrir viðstaddir voru sammála. Skipulagt Mosfellshlaup, lok maí, byrjun júní.
Drykkja hélt áfram og óvíst hvar hún myndi enda.
2.4.2008 | 22:15
Sárlasinn ritari nennir ekki að stytta - fer 69
Kvefpest hefur gengið undanfarna daga og hefur hún bitnað á mörgum í umgengniskreðsum ritarans. Sjálfur var hann ekki fyllillega heill heilsu í dag og hafði hugsað sér að fara afar stutt og varlega í hlaupi dagsins. Þetta tilkynnti ég þegar í Brottfararsal, en fann að viðstaddir tóku mig ekki alveg trúanlega, véfengdu veikindi mín. Allnokkur fjöldi hlaupara mættur: Ágúst, Flosi, Magnús, Jörundur, Kári, Benedikt, Helmut, dr. Jóhanna, ritari og báðir þjálfarar, auk Unu. Engar leiðbeiningar frekar en fyrri daginn, en þó heyrðist Rúnar tauta: Leyfum þessum fíflum að reka sig á...! Skeiðað af stað.
Það skiptist eiginlega í tvö hólf varðandi hlaup, sumir ætluðu stutt, aðrir ætluðu langt. "Ólafur ætlar víst bara stutt í dag," tilkynnti Rúnar. Ég brást hinn versti við og kvaðst mundu að lágmarki fara Stokkinn. Ágúst og Benni ætluðu lengra en allir aðrir og sá síðarnefndi tók skynsemina strax í þjónustu sína: sleppti hestöflunum lausum og lét vaða á súðum, æddi á undan öðrum og sást lítt fyrir. Ágúst reyndi að halda í við hann,en gekk illa. Aðrir dóluðu sér þetta í rólegheitunum.
Við Nauthólsvík skildu leiðir, aðeins Benni, Ágúst, Helmut, dr. Jóhanna og ritari héldu áfram, Una og þjálfararnir fylgdu okkur yfir brúna yfir Kringlumýrarbraut, en lengra fóru þau ekki. En fyrir okkur hin var það bara 69 sem heillaði, og teygði okkur áfram mót ævintýrunum. Ég var enn með Stokk í huga, en fór smám saman að resonera sem svo að það skipti ekki máli hvort maður færi Stokk eða 69. Og satt bezt að segja skal viðurkennt að það hvarflaði jafnvel að mér að stytta með hinum lakari hlaupurum - en mér fannst það under sygekassegrænsen.
Fórum Fossvog og hefðbundið eftir það. Benni og Gústi beygðu upp í Kópavog og vissum við ekki meira af þeim. Það sem var merkilegt með hlaup var að við vorum einbeitt og fókuseruð, héldum tempói og jukum það á Sæbraut (eða þannig, fengum meðvind og dr. Jóhanna fauk áfram). Við Helmut drukkum ekkert á leiðinni og vorum ekki þyrstir að heldur (þegar ég segi "drukkum" á ég við vatn eða orkudrykki og þ.u.l.). Stoppuðum aldrei, hlupum upp Ægisgötu og fórum á hröðu tempói nður Hofsvallagötu, sem er alltaf bezti hluti hlaups.
Mættum nokkrum hlaupurum við Laugina, þeir lýstu yfir aðdáun sinni á okkur skárri hlaupurum og löngun til þess að líkjast okkur með tímanum. Teygt, togað farið í pott. Við misstum af komu Benna og Ágústs til Laugar, sem er ávallt sögulegt og þeir illa útlítandi, hálfmeðvitundarlausir og ekki við mælandi, með slefuna lekandi niður á höku.
Í potti var leitt getum að því hvað farið hefði þessum miklu hlaupurum í milli á hlaupum og búið til eftirfarandi leikrit:
Ágúst (hjá gömlu Rafstöðinni við Elliðaár, hafandi farið upp að Árbæjarlaug): Jæja, þú segir það!
Benni: Segi ég hvað?
Ágúst: Nei, bara, þú segir það, maður bara tekur svona til orða, þú segir það, hefurðu ekki heyrt það?
Benni: Segi ég hvað, hvað ertu að segja? Ég sagði ekki neitt. Ég segi aldrei neitt á hlaupum! Menn eiga að halda kjafti á hlaupum, tala minna, hlaupa meira! Hef ég ekki sagt það nógu oft?
Ágúst: Nei, þú misskilur! Þú mátt ekki taka þessu svona bókstaflega, maður tekur bara svona til orða. Þú mátt ekki bregðast svona illa við alvanalegu orðfæri, fólk fælist frá þér ef þú ert alltaf svona fámáll.
Benni: Erum við hér til að hlaupa eða til að tala?
Ágúst (lágt við sjálfan sig): Æ, mig auman! Þú ert vonlaus!
Sögumaður: Þeir hlaupa áfram í þögn.
Seint og um síðir kom Ágúst í pott og staðfesti í meginatriðum atburðarásina sem samin var af viðstöddum. Aukinheldur upplýsti hann að Benedikt hefði viðurkennt mistök: farið allt of hratt af stað (what else is new? hvenær ætla menn að læra!). Rætt um kvikmyndir, m.a. kvikmyndina Being there með Peter Sellers, sem minnti Ágúst á tiltekna stjórnmálamenn sem bulla og bulla og menn gapa af aðdáun yfir vitleysunni og hefja þessi fífl til skýjanna og þeir ná æ meiri upphefð innan stjórnmálanna. Verst að Jörundur var farinn, sá hefði notið sín hér.
Á föstudag er Fyrsti Föstudagur. Skyldumæting, afhending marzlöbersins. Hver er þessi efnilegi hlaupari sem dr. Jóhanna er búin að velja? Mætum öll á Mimmann og tökum vel til okkar drykkina!
31.3.2008 | 21:43
Hert á hlaupi - hert á kröfum, hlaupari tekur flugið
Er Vilhjálmur Bjarnason mætti í Brottfararsal spurði hann ritara hvort hann væri "mjög svip-aður" - eða eins og segir í íslenzku kvæði:
Hanar eru hérlendis
herfilega graðir.
Íslendingar erlendis
eru mjög svip- aðir.
Gagnrýni á fjölmiðlafólk. Það birtir óbreyttar eða lítið breyttar fréttatilkynningar frá ónefndum fyrirtækjum, hnýta með mynd af yfirstrumpum, setjast svo og bíða eftir að verða kallaðir í ráðningarviðtöl með von um að enda sem blaðurfulltrúar téðra fyrirtækja. Ónefndum fjölmiðlafulltrúa sem með okkur hleypur var ekki skemmt, hann lýsti yfir því að hann myndi ekki hlaupa með VB í dag.
Þjálfarinn fullur miskunnar. Stefnt á hefðbundið og svo undan vindi á Ægisíðu. Mætt: Vilhjálmur, Ágúst, Benedikt, Magnús, ritari, Una, Þorbjörg og Margrét þjálfari. Farið stíft út - hópurinn hélt hópinn framan af. Á Suðurgötunni fór ritari fyrir myndarlegum hópi á hröðu skeiði. Svo fóru þeir sperrileggir Ágúst og Benni að derra sig, fóru fram úr og skildu okkur hin eftir. Á Suðurgötu við flugvöll tók Þorbjörg flugið er hún rak fótinn í ójöfnu, og hætti hlaupi. Við Dælustöð var gefið í, ég heyrði tiplið í þeim Unu og Möggu líkt og blómasalinn væri þar sjálfur kominn. Ég gaf í til þess að reyna þolrifin í þeim og freistaði þess að brjóta þær niður eins og maður gerir svo létt með blómasalann. Það virtist ætla að virka, allt þar til kom að síðustu húsum í Skerjafirði, þá sigu þær fram úr og skildu mig svo eftir.
Mættum Neshópi, nú var maður farinn að kannast við sig. Guðrún Geirs, Denni, Sæmi, Friðbjörn, Rúna o.fl. góðir félagar á fínu stími austur úr. Hér vorum við enn í fullum þéttingi, en það teygðist á milli vina. Er ég kom í Skjólin voru allir horfnir, og ef mér skjöplast ekki var vík milli þeirra vina er áfram héldu. Er þetta skemmtilegt? Ég hélt áfram á Nesið, en lét nægja að fara á Eiðistorg, fór Nesveginn tilbaka beinustu leið til Laugar. Það var kalt.
Ekki hafði ég lengi dvalið í potti er þangað kom Jörundur, Stórhlaupari og Stolt Hlaupasamtakanna, nýorðinn 67 ára og þar með löggilt gamalmenni, þótt enginn trúi því þegar menn berja manninn augum, sólbrúnan, stæltan og sællegan. Svo komu þeir, Einar blómasali óhlaupinn, og Magnús. Magnús kom í fullum klæðum og í skóm sem ég kannaðist við. Einar var kankvís þegar hann tilkynnti að hann væri búinn að selja Magnúsi nýju hlaupaskóna mína á 5000 kall. En í reynd var Magnús að máta skóna, hann langar í svona skó og vildi vita hvernig þeir pössuðu.
Í júní er skipulagt 100 km hlaup. Menn hafa áhyggjur af því að reynt verði að hnekkja meti próf. Fróða - en hann var góður með sig í potti og sagðist hafa ráð við því. Hann væri búinn að ráða Kalla kokk til þess að fylgjast með hlaupurum og ef einhver gerði sig líklegan til að hnekkja metinu færi hann út með sprautu og krukku að heimta blóð og þvag af hlaupurum.
Á miðvikudag verður lengt enn meir, Goldfinger, Stíbbla, Árbæjarlaug - við vorum á þeim slóðum í fyrra. Tímabært að rifja upp kynnin nú er vorar. Vel mætt, í gvuðs friði, ritari.
PS - ritari er verulega irriteraður yfir þessum misheppnaða miðli, bloggi sem virkar þannig að ef músin fer óvart yfir á annan hlekk, t.d. finnskt flugfélag, meðan á ritun stendur, þá dettur allur ritaður texti út og er glataður að eilífu - þetta gerðist fyrr í kvöld, ég var búinn að eyða heilum klukkutíma í að slá inn innblásinn texta, upplýstan og mergjaðan, uppfullan af níði um fólk, og lenti þá í þessum andskota - það sem ég bölvaði! Manni finnst að þeir sem standa fyrir svona appírati eigi að búa svo um hnútana að texti týnist ekki þótt maður fari eitthvað annað í Netheimum. Ég biðst því afsökunar á texta dagsins, hann er langt frá því að vera af þeim kalíber sem hlaup dagsins kallar á.
28.3.2008 | 21:08
Áfram í grjótinu
Hraði er afstæður. Dr. Jóhanna spurði okkur Helmut: Strákar, eruð þið óvenjusprækir í dag, eða er eitthvað að mér? Við þvertókum fyrir að við værum eitthvað skárri en venjulega (þetta er að vísu gamalt trikk til þess að koma í veg fyrir að hlauparar fari að slá af, sbr. í vetur þegar Gústi kom aftur eftir meiðsli og kvartaði yfir að venjulegt föstudagshlaup væri á við síðustu 10 km í 100 km hlaupinu í Frakklandi). En þannig var að eftir að við höfðum verið á léttu skokki jukum við hraðann og sex hlauparar héldu hópinn á þéttu stími, en lítið fór fyrir öðrum, sennilega fóru þeir eitthvað styttra, engin nöfn nefnd. Fórum hefðbundið um Nauthólsvík og svo upp Hi-Lux og þéttingur upp brekkuna í Öskjuhlíð. Rætt um Kvarans-ættina. Ágúst leiddi okkur með hvatningum og leiðbeiningum um þéttinga - þeir voru teknir á hefðbundnum slóðum: Hi-Lux, Klömbrum, Sæbraut eftir Sólfarið, og upp Ægisgötu.
Hlauparar stóðu sig vel, slógu ekki af hraða, þótt erfitt væri og nutu þess að fara hratt. Þó var grjótið farið að skera svo í ilina á ritara á Sæbraut að hann varð að staðnæmast og aðgæta hvað væri í gangi. Á meðan héldu þau hin áfram og höfðu litlar áhyggjur af félaga sínum. En þetta er hlutskipti hlauparans: hann er alltaf einn, hann á enga vini. Ég fann saum í botninum á skónum sem orsakaði meiðslin, sá að ekkert var við því að gera og hélt áfram haltrandi. Fór um Hafnarsvæðið, yfir Mýrargötu og þannig tilbaka.
Í Móttökusal ríkti gleðin ein, Flosi sást í útiklefa, en ekkert bólaði á þeim Kalla og Brynju. Það var teygt og tuðað um fatnað - sumir á leið út á lífið.
Er heim var komið beið ritara nýjasta útgáfa af Asics Nimbus, ásamt öðru góðgæti frá Torfa á Hlaupasíðunni - aldeilis ástæða til að hvetja félaga til að verzla hjá karlinum af Gafli. Ég veit að blómasalinn tekur ekki á heilum sér þegar hann heyrir kjörin sem ég naut. Næst er hlaupið á sunnudagsmorgun kl. 10:10.
Pistill Ritara | Breytt 29.3.2008 kl. 10:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2008 | 21:49
Hlaupið í ónýtum skóm - með hælsæri og hvasst grjót undir ilinni
Hetjur hlaupa með Hlaupasamtökum Lýðveldisins. Það fyrsta sem þjálfarinn rak augun í á Brottfararplani voru skór ritara, ekki einasta stóð táin út úr skónum, heldur stóð hún einnig út úr sokknum. Hann benti mér kurteislega á að hugsanlega væri komið að þeim tíma að það mætti fara að íhuga endurnýjun hvors tveggja. Ég lét þess getið að þetta væri bara byrjunin, ég væri einnig með hælsæri og vel yddað grjót undir ilinni. "Hlaupið þið virkilega með grjót í skónum? Svo að þjóðsagan er þá sönn." "Já, og ef það slípast of mikið til og hættir að meiða okkur, þá skiptum við um og setjum nýtt og grófara."
Þorvaldur lá sofandi út í gluggakistu þegar ég kom. Bjössi kokkur var mættur og kominn í gírið, tilbúinn að taka á því eftir helgardvöl í höfuðstað Norðurlands. Þá komu þeir hver af öðrum, Flosi, Sjúl, Magnús, Ágúst, Kári, Bjarni, Helmut, Benedikt, Una, Margrét og Rúnar. Menn tipluðu á tánum og hvísluðust á til þess að vekja ekki Þorvald. Það sást til dr. Jóhönnu - en ég sá hana ekki hlaupa með okkur. Eftirvæntingin var áþreifanleg, þrátt fyrir að menn væru að rísa úr óreglu helgarinnar varð vart við heitstrengingar og ásetning um langt hlaup.
Engar leiðbeiningar frá þjálfurum, eins og þeir ætluðust til þess að við fyndum út sjálf hvert ætti að fara og hversu langt. Við vorum hálf ráðvillt, en héldum af stað engu að síður. Heil hersing af glaðsinna hlaupurum sem steðjuðu niður Hofsvallagötuna og út á sléttuna, veður hið bezta, hægur andvari en nokkuð svalt. Svo virðist sem vorinu hafi verið slegið á frest og við megum una við kaldari veðráttu, en hvað mega ekki Finnar þola, það gekk brjálaður snjóstormur yfir landið í dag, allt á kafi í snjó og umferðaröngþveiti, ja, heppnir erum við Íslendingar.
Hópurinn fór á hægu tempói framan af og greinilegt að margir höfðu misst sig í ofáti og óreglu um helgina. M.a.s. Benedikt var bara rólegur, enda er ógjörningur fyrir Ágúst að þjálfa hann ef hann lætur sig bara hverfa og er ófær um að taka við leiðbeiningum frá þjálfaranum. Það var ekki fyrr en við flugvöll að fór að draga í sundur með okkur, ég endaði með Helmut og Sjúl, sem gerðu ekki annað en að kvarta yfir því alla leiðina hvað þetta væri erfitt og þeir þungir á sér. En þrátt fyrir að þeir töluðu sig þannig niður unnu þeir sigurinn yfir sjálfum sér, héldu hlaupi áfram og stoppuðu aldrei. Við fórum yfir Kringlumýrarbraut og niður í Fossvoginn út að Elliðaám og tilbaka aftur vestur úr. Rætt um hárgreiðslufólk og hvernig á að halda veglegar veizlur. Við Kringlumýrarbraut var framkvæmd ágústínsk stytting, stytting í sýnd, en lenging í reynd, sem felur það í sér að hlauparar stytta sér leið, en skila engu að síður fleiri hlaupnum kílómetrum þegar upp er staðið.
Hlaupið viðstöðulaust alla leið tilbaka, lítið drukkið af meðhöfðum drykk, en þessi hlaupari var orðinn verulega sár af núningi grjóts og vegna hælsæris, en lét það ekki stöðva sig - líður enda bezt illa. Hittum nokkra hlaupara við Laug sem höfðu farið styttra. Teygt þar. Litlu síðar komu Ágúst og Benedikt, og spurði ég Ágúst hvort ekki hefði verið leiðinlegt að hlaupa svona langt með manni sem þegir. "Ja, hann talaði nú soldið. Óumbeðið." En hið rétta í málinu mun vera að Einar bróðir slóst í för með þeim og hljóp eina 4-5 km og þá var talað. Eftir það skall þögnin á og var órofin alla leið tilbaka. Svo hratt var farið að þeir voru búnir að missa stjórn á helztu líkamsfunksjónum, slefan rann fyrirstöðulaust niður hökuna á þeim báðum og virtust þeir ómeðvitaðir um þennan annmarka á ásýnd þeirra. Við Helmut og Sjúl fórum 69, nálægt 18 km (17,09 skv. hinu gallaða Garmin-tæki Sjúl, 69 verður alltaf styttra og styttra hjá honum!) - Ágúst og Benni fóru upp að Stíbblu, 21,96 km.
Í potti var skrafað um ofurhlaup. Ágúst var greinilega farið að þyrsta talsvert, því um það er ritari stóð upp sagði hann annars hugar: "Er ekki Fyrs... nei..." - ég benti honum á að það væri miðvikudagur í lok marzmánaðar. Í næstu viku er Fyrsti Föstudagur.
24.3.2008 | 20:33
Einmanalegt starf og vanþakklátt
Annálaritun stendur á gömlum merg á Íslandi. Fyrr á tíð var annálaritun þurr upptalning staðreynda án þess að leitast væri við að greina aðalatriði frá aukaatriðum né að varpa ljósi á orsök og afleiðingu. Önnur bókmenntategund og þekktari hér á landi var ritun heilagra manna sagna, riddarasagna, og ekki síst, Íslendingasagna. Þar var hugað meira að atburðarás, persónusköpun, byggingu sögu, rás viðburða, og óhagganlegum örlögum manna. Sögurnar fólu í sér sviðsetningar, dramatíseringu, samtöl og grunkveikjur. List þessara sagna er okkur óendanlegur innblástur.
Bloggarinn er annálaritari samtímans. Það er einmanalegt starf og vanþakklátt að vera annálaritari í Hlaupasamtökum. Annaálaritari horfir til fortíðar í starfi sínu í þágu Samtakanna. Í bókmenntalegri viðleitni sinni þræðir ritari einstigið milli sagnfræði og skáldskapar af samvizkusemi, milli hefðbundinnar og fábrotinnar annálaritunar annars vegar, og skemmtunar hins vegar, en missir sig öðru hverju út í ýmsar skyldar greinir bókmenntanna, svo sem ýkjusögur og heilagramannasögur. Að honum sækja ýmsir sem telja sig hafa ýmislegt til málanna að leggja og vilja miðla hugmyndum sínum. Úr miklum efnivið er því að moða, að ekki sé minnst á þann efnivið sem fellur til á hlaupum þegar menn opna hug sinn og segja hvaðeina er þeim kemur í hug.
Niðurstaðan er því alla vega og fellur mönnum misvel það sem þeir lesa á bloggi, þá sjaldan þeir nenna að lesa bloggið. Sumum finnst farið full háskalega í sviðsetningar ýmislegar og tilvitnuð samtöl, aðrir telja að heilagleikinn sé orðinn fullmikill, væmnin og helgislepjan taki út yfir allan þjófabálk, er m.ö.o. under sygekassegrænsen (úr hugtakasafni Ó.Þ.). Þannig er það annálaritarinn sem verður ávallt í hlutverki boxpúðans og getur aldrei gert öllum til geðs.
Fámennt að hlaupum á annan í páskum þrátt fyrir að það væri yfirlýstur og lögboðinn hlaupadagur í Hlaupasamtökum Lýðveldisins. Þrír mættir: Vilhjálmur, Bjarni og Ólafur ritari. Kalt í veðri og einhver vindur, því varð að grafa fram Balaklövuna aftur og finna flíspeysu. Einar mætti allur haltur og skakkur í útiklefa og því ekki í hlaupaformi. Síðan mættum við Ó. Þorsteinssyni út við flugvöll, hann var fyrr á ferð vegna skuldbindinga sinna sem námsmanns. Stuttur stanz, spjall, svo var haldið áfram og tekið á því. Vegna þess hversu hægt var farið í gær þótti ekki stætt á öðru en taka á því í dag og því engin stopp tekin - við Bjarni fórum á undan og fórum allhratt yfir. Hefðbundið sunnudagshlaup, en farinn Laugavegur á heimleiðinni.
Rætt um skófatnað í potti. Áfram halda hlaup á miðvikudag - verður farið langt? Verður farið í sjóinn? Hver veit?
Pistill Ritara | Breytt 25.3.2008 kl. 10:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)