12.6.2009 | 21:05
Framtíðin björt
Farið af stað á hefðbundnu hægu tempói. Við mættum Aldursforseta hlaupara á Íslandi, Jóni hlaupara, sem tók feiknarsprett á Ægisíðu er hann sá okkur. "Flottur!" sagði einhver, Magnús hló við fót. Áður en langt um leið vorum við komnir á hratt tempó og héldum því út í Nauthólsvík. Þar var sveigt niður á ramp og farið af pjötlum. Fjórir hlauparar fóru að fullu í sjóinn: Björn, Flosi, Ágúst og ritari. Benni fór að takmörkuðu leyti í sjó, upp á læri eftir því sem gleggstu menn rak minni til. Svo var bara haldið áfram.
Það var beygt uppí Öskjuhlíð og tekinn sprettur upp brekkuna góðu. Svo áfram hefðbundið. Þrátt fyrir að þarna væru á ferð hlauparar með ójafna getu í hlaupum héldum við hópinn nokkurn veginn alla leið. Næsti sprettur var tekinn á Klambratúni. Þaðan út á Sæbraut, sprettur frá Sólfari. Þegar komið var að Ægisgötu ákváðu ofurhlauparar að halda áfram út í Ánanaust og þaðan um Grandaveg tilbaka í Laug. Vegalengd 12,7 km - meðaltempó nálægt 5 mín.
Í potti var Einar blómasali, kvaðst hafa mætt kl. 16:45 til hlaups og farið ótilgreinda vegalengd. Engar ábyggilegar mælingar voru til þess að staðfesta frásögn hlauparans og verður hann því enn að falla fórnarlamb óvissunnar. Í potti urðu gáfulegar umræður um stöðu mála og framtíð lands og þjóðar. Eftir ítarlega greiningu var niðurstaðan sú að staðan væri bara allgóð og framtíðin björt. Gengu menn úr potti með sól í sinni.
Á sunnudag fer fram hefðbundið Reykjafellshlaup, og er hlaupið frá SundLaug Vorri kl. 9:30. 22 km - vel mætt!
10.6.2009 | 21:02
Ýmislegt í gangi
Ritari var meðmæltur sjó. Undirtektir góðar. Farið á rólegu tempói inn í Nauthólsvík. Er þangað var komið fóru þessir í sjóinn: Helmut, ritari, blómasali og Kári. Svamlað á grunnsævi. Dr. Jóhanna fór upp að hnjám. Þetta var yndislegt. Að þessu loknu var haldið austur Flanir þar sem lúpínan blómstrar um þessar mundir. Svo upp í Hlíðina áður en komið var í kirkjugarð. Hlaupið um skógarstíga sem þessi hlaupari hefur aldrei farið um áður. Aftur niður í Nauthólsvík og svo stytztu leið tilbaka.
Fólk mættist á Plani mjög á sama tíma og var teygt vel og lengi. Ekki var farið lengra en Þrjárbrýr í hlaupi dagsins. Drög lögð að næstu hlaupum, einhverjir ætla 6:25 í fyrramálið, aðrir ætla í Álafosshlaupið á föstudag, enn aðrir munu hlaupa á Nes á föstudag og fara í sjó í hefðbundnu föstudagshlaupi. Kári átti góðar rispur í potti.
10.6.2009 | 10:53
Glóðarsteiktur skógarköttur
Mánudagurinn 8. júní rann upp bjartur og fagur og fullur fyrirheita. Það var hlaupið kl. 17:30 frá Vesturbæjarlaug. Ekki man ég hverjir voru mættir, en man þó að blómasalinn var ekki mættur, svo mikið er víst! Sprettir 1 mín., 2 mín., 4 mín. út frá Skítastöð og inn í brekku handan Kringlumýrarbrautar, þrjú sett, mín. á milli, 2 milli setta. Tekið á því. Erfitt en ánægjulegt. Fólk almennt að komast í fantaform.
Fram fóru umræður í potti um Fyrsta Föstudag hinn 5. júní er fram fór með miklum ágætum að Kára og Önnu Birnu. Grillað kjöt af einhverju tagi sem vildi kvikna í. Dr. Jóhönnu ofbauð brunamennskan svo hún þreif dulu og ætlaði að kæfa bálið með henni. Í ljós kom að "dulan" var köttur sem svarar nafninu Kismundur og er heimilisfastur á því sama heimili heiðurshjóna. Góðir menn gengu milli, en doktorinn grunaður um óvild í garð saklausra málleysingja.
Minningarhlaup Guðmundar Karls Gíslasonar þreytt þriðjudaginn 9. júní - myndir af hlaupi er að finna í myndaalbúmi bloggsíðunnar.
Í gvuðs friði. Ritari.
PS - verður hlaupið? Verður sjór?
1.6.2009 | 16:32
Það var hlaupið - það var fámennt
Hlaupasamtökin áttu fjóra hlaupara í Mývatnsmaraþoni í gær: Pawel að fara sitt fyrsta maraþon, maður nýbyrjaður að hlaupa, og lauk með sóma. Friðrik, Rúna og Stefán Ingi í hálfu, Frikki fimmti maður í sínum flokki.
Við Einar sórum þess heit í miðju hlaupi í dag að hætta að drekka bjór, að mestu! Við höfum þá eindregnu löngun að léttast og verða grannir menn. Sem er vandamál þegar kemur að Fyrsta Föstudegi n.k. föstudag. Þá er engin Laug - enginn samastaður, hvað er hægt að gera?
30.5.2009 | 21:38
Goldfinger revisited - gamlir kunningjar heimsóttir
Ég gerði mér engar grillur um að hanga í fremsta fólki eins og ég gerði síðustu helgi. Enda var fólkið fljótlega horfið. Mér var alveg sama. Þjösnaðist áfram í sunnanroki út Ægisíðu og var að mestu einn. Mættum dr. Jóhönnu sem hefur líklega verið að ljúka sínum hefðbundna 18 km laugardagsskokki, og stuttu síðar Jörundi prentara, sem var að ljúka 27 km, hafandi farið um Kársnes, komið við hjá Ágústi í Lækjarhjalla (ekki fylgdi sögu hvort lokið var upp fyrir honum). Við flugvöll varð lognið aðeins meira og það var hreint með ágætum að hlaupa í Fossvoginn, en austarlega tók aftur að bæta í vind. Við Víkingsvöll sveigði ég inn í Kópavoginn og tók brekkuna erfiðu og þar upp hjá Goldfinger.
Yfir í Breiðholtið og upp hjá mömmu Gústa. Þegar komið var að Stíbblu varð mér hugsað til síðasta laugardags þegar fólkið gafst upp og ákvað að stytta. Ég hugsaði með mér að sú yrði ekki raunin í dag, það skyldi haldið áfram upp að Árbæjarlaug. Þetta var auðvelt og einfalt. Og þú, lesandi góður, kannt að hugsa: hvers vegna gerir hann þetta? Hvernig gerir hann þetta? En ég svara: ég get þetta, ég vil þetta!
Ég upp að Laug, inn að pissa og fylla á brúsa (með vatni, ekki hlandi). Svo áfram niður eftir. Þetta var yndislegt! Ég, ritari, einn með sjálfum mér, í náttúrunni miðri þegar hún er í fullum vexti, gróðurangan í lofti, á hægu krúsi eins og mér hentar bezt. Þetta gerist ekki betra. Niður úr, einstaka kona á ferli á undan mér, en ég lét þær í friði. Gerð stopp á völdum stöðum til að drekka, ég drekk ekki hlaupandi. Niðri við Breiðholtsbraut, inn við Teiga, á Sæbraut og svo við Ægisgötu.
Þreyta sat í ritara frá seinasta laugardegi, sprettum á mánudegi og löngu hlaupi sl. miðvikudag. Þess vegna voru ekki sett nein met, en ég var sáttur við að ljúka 24 km hlaupi á tveimur og hálfum tíma. Flestir aðrir hlauparar voru horfnir er komið var til Laugar, Eiríkur einn eftir með frú. Sátum lengi og spjölluðum saman í blíðunni.
Framundan: lokað í VBL 2. - 6. júní. Hvað gera hlauparar? Mér skilst að þjálfarar vilji halda fast við þá ætlan að hlaupa kl. 17:30 nk. mánudag, annan dag hvítasunnu, þrátt fyrir að Laugin loki kl. 18. Sama dag munu hlauparar skv. hefð hlaupa kl. 10:10 frá VBL. Ég mun ekki gera frekari tillögur um hlaup næstu viku þar eð ég verð í hvíldarvist í Reykholtsdal út vikuna. En vek athygli á Laugardalslaug og þeim leiðum sem þaðan liggja dag hvern greiðlega austur um sveitir, inn í Ellilðaárdal og þaðan upp úr.
Bloggar | Breytt 31.5.2009 kl. 19:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.5.2009 | 20:41
Stjórnmálaátök
Gegnum gervallt bankahrunið og kreppuna hefur bróðerni og systerni haldizt með hlaupurum í Hlaupasamtökum Lýðveldisins. Raunar er það svo að vér teljum að hlaupin hafi hjálpað okkur til þess að endurheimta trú okkar á íslenzkt samfélag og íslenzka þjóð. Hver man t.d. ekki eftir því þegar Vilhjálmur Bjarnason króaði kanadískt kvikmyndakrú af úti í horni og hélt yfir þeim þrumuræðu um íslenzkt upplag, dirfsku og kraft, í hruninu miðju!
En ekki meir. Frétzt hefur af því að útlenzkur vandræðamaður að hafni Dalai Lama sé á leið til landsins. Hefur Birgir jógi verið óþreytandi að breiða út orð hans, er vakinn og sofinn yfir því að messa um ágæti hans og telja mönnum trú um að þeir verði að fara á fyrirlestur hans í Laugardalshöll. Rifjuð eru upp ummæli Friðriks kaupmanns frá seinasta mánudegi þegar hann þreyttist á blaðrinu í Bigga og kvaðst vera þessi Dalai Lama. Jæja, þetta hélt áfram í Brottfararsal í dag. Birgir búinn að sporðrenna steiktum hafragraut og fimm hvítlauksrifjum og angaði í samræmi við það. Hélt áfram trúboðinu um Dalai Lama.
Hér var sleginn nýr tónn. Próf. Fróði kvaddi sér hljóðs og sagði að hann hefði allt aðra sögu að segja af þessum meinta velgjörðarmanni tíbetzkrar þjóðar. Samkvæmt upplýsingum frá Kína væri þetta fulltrúi yfirstéttarinnar sem hefði á sínum tíma ráðið yfir fátæku fólki og þrælum, byggt fornt og frumstætt samfélag. Þegar Kínverjar komu til Tíbet hafi þeir byrjað að innleiða ýmsar nýjungar og framfarasinnaðar umbætur, en nei! Það mátti ekki. Það mátti ekki kenna fólki að lesa eða byggja upp heilbrigðisþjónustu. Það átti að viðhalda fátækt og þrældómi. Aðkoma Kínverja varð til þess að Dalai þessi hvarf ásamt yfirstétt Tíbets, þeir fóru úr landi með allan auð landsins. Hafði prófessorinn eftir þessum kínverska vini sínum að ekki væri mikil eftirsjá að þessu liði.
Birgir varð æfur er hann heyrði þessa söguskýringu og réðst til atlögu við prófessorinn, urðu nokkrar ryskingar og átök í kjölfarið, en okkur hinum tókst að stilla til friðar og minna á að við værum hér til að hlaupa, en ekki til að slást. Með lempni tókst að teyma þess tvo herra út á Plan og þar stóðum við í vindinum og kuldanum og biðum þess að hlaup hæfist. Þá mætti blómasalinn. Aðrir mættir þessir: Ágúst, Birgir, Flosi, dr. Jóhanna, Ólafur ritari, Kári, Kalli, Eiríkur og Benedikt. Ekki mjög margir, en líklega má fullyrða að öflugustu hlauparar Samtakanna hafi verið komnir saman á Plani. Enter blómasalinn.
Það var farið af stað áður en blómasalinn var kominn út, hann var skilinn eftir. Kom einhver þá sem nú er aðeins óljós minning? Er þetta allinn?
Gífurlegur mótvindur á Ægisíðu - þetta var ekki skemmtilegt. Maður stóð í stað á köflum. Ég endaði með Birgi sem var þreyttur, gat því látið sér nægja að fara með mér. Hann hætti ekki að tala alla leiðina, við fórum hefðbundið, 11,3 km og hann talaði ALLA leiðina. Ég náði að skjóta inn orði og orði, og sögukorni á köflum, en annars sá hann um að tala. Sem betur fer er ritari vandaður einstaklingur og ljóstrar ekki upp um það honum er sagt í trúnaði - eins og dæmin sanna og menn hafa séð. Því verður ekki farið nánar inn í þau ýmislegu umræðuefni sem voru uppi á borðinu hjá okkur, en það var allt frá bæklingasmíð til sagnaritunar í seinni tíð. Við tókum þetta á rólegu nótunum, en höfðum þau prófessor Fróða, dr. Jóhönnu og Flosa framundan okkur lengst af. Farið var hefðbundið um Veðurstofuhálendi, Söng- og skákskólann við Litluhlíð, Klambratún, Hlemm og niður á Sæbraut. Þar var veðrið orðið skaplegt og við skokkuðum í góðum fílíng tilbaka til Laugar.
Pottur var geysilega vel mannaður. Jörundur mætti óhlaupinn, var að hvíla fyrir langt hlaup á laugardegi. Einnig Denni, allur skakkur og dældaður, hafði fengið þursabit svo að það lá við maður sæi hvar þursinn hafði bitið stykki úr síðunni á honum. Setið lengi og rætt um margvísleg málefni, en á endanum barst talið náttúrlega að áfengi, eins og venja er.
Nú er spurning um framhaldið. Möguleiki er á hlaupi í fyrramálið kl. 9:30 - langt. Lokað er í VBL á sunnudag og verður ef að líkum lætur ekki hlaupið þá þar eð ekki verður komizt í vatn í Vesturbænum að loknu hlaupi. Þess í stað er gerð tillaga um hlaup á mánudagsmorgun kl. 10:10 - þá er helgidagur og hefðbundið að mæting sé á þeim tíma. Í gvuðs friði, ritari.
PS - laug lokuð alla næstu viku, hvað gerum við þá?
27.5.2009 | 21:52
Loksins Ágúst - en enginn Helmut
Einmunablíða á miðvikudegi þegar hefðin býður að hlauparar í Hlaupasamtökum Lýðveldisins hlaupi langt og fari jafnvel í sjó. Allnokkur fjöldi mættur og dr. Friðrik mættur fyrstur af öllum á Plan og gekk óþreyjufullur um eins og ljón í búri og beið þess að hlaup hæfist. Auk fyrrnefnds háls-, nef- og eyrnalæknis voru þessi mætt: Margrét og Rúnar, Flosi, Ágúst, Þorvaldur, Kári, Ósk, Stefán Ingi, Einar blómasali, Friðrik kaupmaður, Birgir, Kalli, Magnús, dr. Jóhanna og svo tíndum við Jón Gauta upp á leið okkar.
Engar ákveðnar línur gefnar upp um vegalengdir eða hraða, en nefnt Þriggjabrúahlaup, einnig 69. Máttu menn ráða hversu langt þeir færu. Hersing lagði hægt af stað, enda hiti allnokkur og eins gott að hafa sig hægan. Birgir hafði sig mjög í frammi framan af hlaups og talaði við hvern sem nennti að hlusta um Dalai Lama og hvort ætlunin væri að fara á fyrirlestur hans. Ég er Dalai Lama! sagði Friðrik kaupmaður og drap þar með umræðuna. Þetta sló Bigga næstum því útaf laginu, næstum því. Hann skrópaði á kóræfingu í kvöld og kvartaði sáran yfir saungvalinu á þeim bænum, eintómur einhver Sjúbert með endalausum þögnum. Hann hefði freistast til þess að taka undir með öðrum röddum í kórnum, sópran, tenór, bara til þess að þurfa ekki að þegja.
Friðrik læknir og Maggi ætluðu stutt töluðu um að það væri einhver leikur í sjónvarpinu sem þeir vildu horfa á. Þegar dró nær Nauthólsvík mættum við Birni hlaupara sem var snemma á ferðinni og virtist hafa hug á að horfa á þennan sama leik. Það skipti um við Borgarspítala, þá fóru einhverjir hlauparar upp brekkuna, og voru kennzl borin á þessa: þjálfarar, dr. Jóhanna, Ósk, Jón Gauti. Við Ágúst héldum áfram í Fossvoginn og líklega einhverjir á eftir okkur. Ágúst hafði spurt mig hvort ekki mætti treysta því að ég færi langt svo að hann hefði félagsskap. Jú, alla vega 30. Þá ljómaði Saharan.
Við áfram og mættum fjölda hlaupara á leiðinni, líklega Laugaskokki. Hneyksluðumst á fólki sem fórnaði góðu hlaupi til þess að geta hangið innandyra og horft á fóbboltaleik. Héldum þokkalegu tempói, en vorum samt báðir þreyttir og fórum ekki mjög geyst. Það komu ýmis gullkorn úr Sahara og jafnframt var á einhverjum tímapunkti rætt um hlaupara sem hljóp í tvo sólarhringa samfellt, í endalausa 1 km hringi. Brjálæði! Við Elliðaár var fjöldi barna að leika sér í veðurblíðunni, skvampandi í ánum. Við gerðum stanz öðru hverju til þess að drekka, enda þykir ritara óþægilegt að drekka hlaupandi. Ágúst er hins vegar vanur að drekka bæði og borða á hlaupum, en sagði að hann hefði á endanum ekki komið niður powerbarinu í Sahara, hann hefði þurft að hrækja því út. Hefði ekki verið með nægilega fjölbreytt þurrfæði í ferðinni góðu.
Á lengstu leiðinni var hlaupið í myrkri í 6 klst. og farið um stórgrýtt svæði. Hafði hann samfylgd tveggja annarra hlaupara, og annar þeirra var með gott vasaljós. Sá var Þjóðverji og þakkaði sjálfum sér fyrir að hafa komið þeim í gegnum svartnættið og stórgrýtið. Ágúst upplýsti jafnframt að vænta mætti ítarlegrar frásagnar í Fréttablaðinu um helgina af hlaupinu. Þá var rætt um Noregsdvölina og er ekki annað að merkja en Ágúst sé orðinn einn óþolandi Noregsvinur. Hann talaði hlýlega um dvölina í Björgvin og taldi staðinn ágætastan allra staða sem hann hefði verið á. Óþolandi!
Þá vorum við komnir yfir Miklubraut og prófessorinn farinn að hljóma eins og hestur sem er búinn að borða yfir sig af rúgbrauði. Svo kom viðkvæmt trúnaðaraugnablik og hann játaði að hafa verið fjarverandi sl. mánudag sökum leti. Ég hughreysti hann með því að maður með slíkt afrek að baki sem Sahara-hlaup mætti vel vera latur öðru hverju. Staðnæmst við vatnshana á Sæbraut og drukkið, við litum aftur fyrir okkur, en sáum engan. Reyndar stönzuðum við öðru hverju þar sem við vorum eilítið þreyttir (eða latir) sáum ekki ástæðu til þess að vera að spenna okkur. Gengum m.a.s. upp hluta Ægisgötu, en hlupum svo restina. Á Hofsvallagötu heyrðist kunnuglegt tipl að baki okkur og hlaupari geystist fram úr okkur eins og hann ætti stefnumót sem hann vildi ekki misssa af. Við sættum okkur ekki við þetta, gáfum í og tættum fram úr honum. Á Plani var leitað skýringa á þessu framferði og fullyrti viðkomandi að hann hefði fylgt okkur Ágústi eftir alla leið, við efuðumst um það og heimtuðum staðfestingu. Ja, að vísu þá fór klukkan mín ekki af stað fyrr en við Skítastöð, svo að ég get ekki sýnt sama kílómetrafjölda og þið. Hér setti hlátur óstöðvanda að prófessornum og þurfti hann að halda um magann til þess að verða ekki fyrir meiðslum. Vegalengd 17,31 km meðaltempó (með stoppum NB) 5:23. Í gvuðs friði. Ritari.
25.5.2009 | 20:21
Fartleikur á mánudegi - enginn Ágúst
Mætt: dr. Friðrik, Margrét og Rúnar, Kalli, Ósk, Friðrik kaupmaður, dr. Jóhanna, Jón Gauti, Jörundur, Benedikt, Denni og Kristján af Nesi. Farið rólega út að Skítastöð, nei, ekki rólega, það var tempó. Svo var tekinn fartleikur. Þrjú sett af 1, 2, 4 mín. sprettum, 1 mín. hvíld á milli, 2 mín. milli setta. Enduðum austan við Kringlumýrarbraut og tókum síðasta settið á leiðinni tilbaka. Það var fantaþéttur hópur sem hélt tilbaka á hægu tempói, sem smájókst og endaði á góðum spretti á Ægisíðu.
Í potti hélt söngvarinn Orri sinn hefðbundna ádíens. En í þetta sinnið var hann eitthvað irriteraður eins og stórsaungvarar eiga upplag til. Raunar endaði það með því að hann grenjaði af gremju. Enda pottur fullur af hrekkjusvínum. Ekki leist útlendingum á þennan mannsöfnuð eða framferði þeirra.
Pistill Ritara | Breytt s.d. kl. 20:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.5.2009 | 16:41
Nýr hlaupari á sunnudegi
Þessir hlauparar fóru hefðbundið á sunnudegi, með hefðbundnum stoppum og helgistundum á helztu stöðum. Á þann hátt voru nýir hlauparar vígðir inn í helgisiði og hefðir Samtakanna.
Ritari var staddur á hjólfáki sínum á Hagamel þegar hann rakst á Sif Jónsdóttur langhlaupara að hlaupa sig niður eftir 30 km rútuhlaup á laugardag. Þá bar að hvítan jeppa flautandi, blómasalinn óhlaupinn með rafvirkja sem hann hafði gómað og ætlaði að hagnýta.
Pottur langur og góður með helztu þátttakendum, Baldur í essinu sínu. Lögð á ráðin um næstu hlaup, m.a. Reykjafellshlaup að sumri.
23.5.2009 | 16:46
Langur laugardagur - niðurlægingin algjör!
Knár hópur mættur til hlaups á laugardagsmorgni: Margrét, Rúnar, Þorbjörg, Bjössi, Eiríkur, Flóki, Kalli, Tinna, Friðrik kaupmaður, Einar blómasali, Ólafur ritari, Dagný og Flosi á hjóli og með viðurgjörning. Veður með allra bezta móti, hægur andvari, rigning, blíðviðri. Stefnan var að fara langt, að Stíbblu eða Sundlaug. Lagt í hann á rólegu tempói, en hraðinn aukinn smámsaman. Eftir Nauthólsvík vorum við á góðum hraða. Magga stóðst freistinguna að bregða fæti fyrir Eirík, en mikið langaði hana til þess! Hraði góður og ritari enn með fremsta fólki.
Við Víkingsvöll var beygt í Kópavoginn og farin ný leið sem Flosi fann fyrir okkur gegnum Blesugróf, yfir Breiðholtsbraut á brú og yfir í Elliðaárdalinn. Upp að Stíbblu og farið yfir og aftur tilbaka niður. Það kom mér á óvart að heyra masið í blómasalanum stutt að baki mér, hélt ég væri löngu búinn að sprengja hann. Hann hafði félagsskap af Flosa, sem hvatti hann áfram. Við áfram niður hjá Rafstöðvarheimili á sama hraða tempói, ég rak tána í stein og fór á flug í anda Ágústs, hékk lengi og ígrundaði ævi mína, greip um ökklann á Frikka og fékk mjúka lendingu.
Áfram tilbaka í Fossvoginn með stefnu á sjóbað. Ég hékk enn í þeim fremstu eftir 12-13 km en eftir það var sælan búin og ég var skilinn eftir. En áfallið kom eftir ca 15 km þá heyrði ég tiplið í blómasalanum, og stuttu síðar tiplaði hann fram úr mér og upplifði ég þar mestu niðurlægingu í langan tíma. Þó var hann aldrei langt undan og ég hafði augun á hinu fólkinu. Það var stöðvað í Nauthólsvík, en ekki varð af sjóbaði sökum þess hve lágsjávað var.
Menn komu á plan á nokkurn veginn sama tíma. Í potti hélt Bjössi ádíens um gamla kokka og leiðbeindi um matreiðslu kræklinga sem hægt er að kaupa víða þessi missirin. Laukur hitaður í smjöri, hvítvíni hellt út í og svo kræklingar settir í og söxuð steinselja. Soðið í fáeinar mínútur þar til er kræklingurinn er farinn að opna sig.
Hlaup dagsins var aldeilis frábært, farnir 21,2 á meðaltempóinu 5:12. Eitt af þessum frábæru hlaupum sem fara í sögubók Hlaupasamtakanna.
PS - því skal til skila haldið að eftir hefðbundið föstudagshlaup í gær var Prófessor Fróði heiðraður fyrir frábæra frammistöðu í eyðimörkinni - var honum færð gjöf frá Hlaupasamtökunum. Komst hann við af viðurkenningunni, tárfelldi og varð orða vant.