Nú ætla ég að reyna að muna hverjir voru mættir (þeir sem ég hef nafnið á): Ágúst, Ólöf, Flosi, Þorvaldur, Friðrik, dr. Jóhanna, Benedikt, Björn, Eiríkur, ritari, Una, Jóhanna (ýmist kölluð "litla" eða "yngri" - ég veit ekki hvort er réttara), Ósk, Margrét, og einhverjir fleiri. Frjálst val um vegalengdir og leiðir. 8- 10 - 12 eða lengra, en meginatriðið að taka 5 km þétting e-s staðar á leiðinni. Áður en lagt var upp kom stutt anekdóta. Litli strákurinn var í skólanum og það var starfskynning. Hann var spurður að því hvað faðir hans starfaði. Stráksi gat ekki með nokkru móti viðurkennt að pabbi hans væri bankamaður, svo að hann svaraði: "Hann er strippari."
Við mættum Magnúsi þegar við lögðum af stað og hann hrópaði: "Haldið bara áfram, ég næ ykkur!" Svo bættist Friðrik í hópinn og það var farið rólega af stað skv. ráði þjálfara. Nú er farið að móta fyrir hjólabrautinni á Ægisíðu og verður gaman að sjá þegar hún verður fullgerð. Það er orðið alldimmt þegar lagt er í hann og hellist þunglyndið að sama skapi yfir hlaupara. Mikil umræða um Evrópusambandið, lýðræðið, nýjan forseta BNA og kassakrakkana á Alþingi.
Ritari þungur á sér eftir lítinn svefn undanfarnar nætur og eiginlega bara slappur, þetta hlýtur að fara að lagast! Datt því fljótlega aftur úr fremstu hlaupurum og hljóp lengi einn. Spurt var: á ég að fara Hlíðarfót, Hi-Lux eða lengra? Sjáum til. Aðrir höfðu gefið út yfirlýsingar um 69 (sem einhverjir eru farnir að kalla "Viktor") eða jafnvel lengra. Um síðir náði Ósk mér við Suðurhlíð og var því ákveðið að fara þá skemmtilegu leið. Við áttum langt spjall um kosningarnar í BNA, aðstæður íslenzkra nemenda í útlöndum, okkar eigin reynslu þar af og fleira. Fórum Hlíðina á góðu tempói, gáfum í á Hringbrautinni á fullu tempói - loks rifjaðist upp fyrir Ósk að hún væri með pott á hlóðum heima fyrir og hvarf hún til þess að huga að honum. Ég einn vestur úr.
Í potti var upplýst að margir hefðu farið Þriggjabrúahlaup, Benedikt og Eiríkur fóru 69 (þar af 6 km á 4:20). Björn fór venju samkvæmt á kostum með frásögum af Dettifossi, þar sem hann kokkaði um árabil. Skrautlegt líf um borð og fjöldi kynlegra kvista. Enn er minnt á Þingstaðahlaup og þó öllu heldur það sem mikilvægara er: Fyrsti Föstudagur n.k. föstudag. Auglýst er eftir venjúi, nánar tiltekið íverustað þar sem safna má nokkrum einmana sálum saman sem vilja reka tungur í mjöð og fagna. Skilyrði er að hann sé í námunda við Vesturbæjarlaug (með þessu er ég ekki að segja að hann ÞURFI að vera á Kaplaskjólsvegi).
Pistill Ritara | Breytt 6.11.2008 kl. 08:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2008 | 22:38
Þjálfarinn áfram haltur, Biggi meiddur, kvennadeild berst liðsauki
Rúnar sagður haltur og mætti ekki, Margrét ein um að reyna að hafa stjórn á mannskapnum. Upplýst að Þingstaðahlaup verður þreytt n.k. laugardag. Rótgróin hefð er um Þingstaðahlaup, sem fer þannig fram að lagt er upp frá Lögbergi á Þingvöllum og hlaupið sem leið liggur alla leið til Höfuðborgarinnar um Mosfellsheiði og ekki numið staðar fyrr en við dyr Alþingis og tekið í dyrnar (ekki ósvipað því þegar próf. Fróði snertir snerilinn á Goldfinger á miðvikudögum). Þeir sem standa fyrir hlaupinu eru téður próf. Fróði, Sigurður Gunnsteinsson og einhverjir fleiri. Hlaupurum er frjálst að koma inn í hlaupið einhvers staðar á leiðinni, t.d. í Mosfellssveitinni, og ljúka því með prófessornum. Allt er þetta liður í undirbúningnum fyrir Sahara.
Dagsskipunin var rólega út að Skítastöð, svo þéttingar út á Nes, 1 mín. þétt, 1 mín. hvíld, 2 mín. þétt, 2 mín. hvíld o.s.frv. upp að 5 mín. og svo að trappa niður. Gerðum þetta prógramm víst í síðustu viku líka. Ritari getur viðurkennt að hann var illa upplagður í hlaupi kvöldsins - vansvefta vegna skemmtanahalds í götunni þegar tilkynningar um fjöldauppsagnir renna í þúsundatali inn til Vinnumálastofnunar. Ef það er ekki tíminn til þess að sletta rækilega úr klaufunum - hvenær kemur hann þá?
Það var farið um Víðimel og þá leið út á Suðurgötu og svo í áttina að Skítastöð. Ritari var sumsé þungur, þreyttur og ómótíveraður til hlaupa. Ætlaði sannarlega ekki að fara að taka þátt í einhverjum sprettum. Myndi líklega láta nægja að fara út að Hofsvallagötu. Er komið var út í Skerjafjörð var ég lentur með öftustu hlaupurum. Þetta var dapurlegt. Eg var lentur með Kalla og stúlku sem ég hef ekki nafnið á, svo kom Bjarni og fór fram úr okkur og skildi okkur eftir. Ég náði að hanga í Kalla og það var farið í Skjólin, of stutt að fara bara á Hofsvallagötu. Þegar þangað kom var ákveðið að lengja út að Vegamótum, og þegar við komum þangað ákvað ég að fara alla vega út að Eiðistorgi, en félagsskapur minn snöri til Laugar. Á þessum kafla var ég allur að koma til svo það var ekki hægt að fara styttra en á Lindarbrautina.
Ég var einn og yfirgefinn eins og venjulega, algerlega vinalaus, klukkulaus, og því ómögulegt að vita hvenær ég væri búinn með 1 mín., 2 mín., að maður tali ekki um 5 mín. Af þeirri ástæðu lét ég eiga sig að vera að rembast við einhverja þéttinga. Tók þetta bara með skynseminni og var ánægður með mína 12 km.
Í potti var aðeins valmenni. Þar var helzta umræðuefnið hvers vegna bankarnir sæktust frekar eftir verkfræðingum en viðskiptafræðingum til starfa. Staðreynd er (að sögn viðstaddra) að auðveldara er að kenna verkfræðingum viðskipti en kenna viðskiptafræðingum að reikna. Viðskiptafræðingar kunna (að sögn viðstaddra) að leggja saman, draga frá, margfalda og deila -- þetta sem allir kunna úr barnaskóla, en ekki meira. Ónefndur aðili í potti rifjaði upp að viðskiptafræðideildin í ónefndum ríkisháskóla hefði gjarnan verið kölluð "Ruslakistan" hér á árum áður, einhverra hluta vegna. Ekki er þetta sagt hér til ófrægingar heilli stétt manna, heldur til þess að endurspegla umræðuna eins og hún er hverju sinni í hópi málsmetandi einstaklinga. En eins og menn vita er samvizkusamlega greint frá helztu staðreyndum um hlaup og það sem fer manna á milli og ekkert dregið undan.
Á miðvikudag er langt hlaup. Í gvuðs friði. Ritari.
3.11.2008 | 14:38
Haltur þjálfari snýr við - en veður gott að öðru leyti
Heilir og sælir hlaupafélagar!
Í morgun mætti þjálfarinn Rúnar og hljóp haltur
með okkur að Fossvogsgöngubrú þar sem hann snéri við
en við Kalli og Jóhanna fórum svokallaðan "Viktor"
sem er nákvæmlega sama leið og Sixty Nine
nema hún heitir VIktor en ekki Sixty Nine.
Við vorum létt á okkur og geystumst þetta áfram
á tempóinu 5+ og leið vel allan tímann.
Veður gott, hlýtt og í bakið alla leið, utan smá kafla
á leiðinni til baka meðfram sjónum.
Tíðindalaust að mestu en almennt áhyggjuleysi
einkenndi umræður. Ekki kæruleysi, almennt erum
við á því að allt fari þetta nú vel, en aðeins þó ef
fólk sinnir hlaupum reglulega og af einhverju veti.
Í potti voru engir markverðir utan ein kona sem mun
hafa verið í marki fyrir KR á árunum 1958-1962.
Ég held hún heiti Friðbjört.
Í gvuðs friði,
Biggi Jógi
ps. árshátíð hjá Kór Neskirkju í kvöld.
Enn vantar okkur góða tenóra.
PS - við þessa frásögn Birgis er því að bæta að á framangreindri árshátíð slasaðist Biggi við það að sveifla öðrum fætinum yfir hinn (hvernig sem það er hægt!) - þar með slítandi eitthvað í hné. Kveðst ekki munu hlaupa á næstunni, nema þá bara beint áfram, af mikilli íhygli og þarafleiðandi jafnvel í kyrrþey.
31.10.2008 | 22:13
Framsækin samtök sækja inn á ný mið
Veður var eins og það gerist bezt til hlaupa, nánast logn, hiti 4 gráður og duggregn eins og Svíinn segir. Rúna slóst í för með okkur á Plani. Við erum svo frjáls af okkur þegar við hlaupum þjálfaralaus á föstudögum, breytum leiðum, förum á okkar eigin tempói og þurfum ekki að taka þéttinga frekar en við viljum. Enda kom það í ljós að menn voru fremur rólegir, ef ekki beinlínis metnaðarlausir. Þorvaldur hafði ugg í brjósti vegna vindáttar og lagði til öfugan hring - niðurstaða var að fara bakgarða í 107 og þannig út að Skerjafirði, en svo Ströndina - við erum þrátt fyrir allt engir eymingjar.
Einhver æsingur var þrátt fyrir allt í fólki og menn voru að derra sig og vildu fara að færa upp hraðann. Við hin vorum hins vegar róleg og notuðum tímann vel til þess að ræða aðstæður. Nú blasir við að vextir fara hækkandi, afborganir fólks af hvers kyns lánum fara hækkandi, verðbólga á uppleið, laun lækkuð í sumum tilvikum, atvinnuleysi vaxandi, verðhækkanir framundan, kaupmáttarrýrnun óhjákvæmileg - en hvar eru aðgerðir stjórnvalda? Það blasir við að það eina sem mönnum dettur í hug að gera er að taka refsinguna fyrirfram út á þjóðinni, sem ekkert hefur til saka unnið og verðskuldar ekki þá valkosti sem bjóðast. Við höfum ekkert séð og blasir við að sögnin að "haarda" öðlist fastan sess í málinu í merkingunni "gera ekki neitt" eða "fljóta sofandi að feigðarósi". Þannig var stemmningin í þeim hópi sem ég hljóp í.
Nei, nei, við vorum rólegir. Ég og Bjössi og blómasalinn náðum góðum samhljómi þarna einhvers staðar í Hi_Lux og vorum í góðum fílíng, allir að chilla og bara að njóta þess að fara á rólegu tempói, engin ástæða til að vera að spenna upp hraða. Ræddum svolítið um matargerð enda er Björn fagmaður á því sviði, Einar áhugamaður. Á þessum kafla upphófst samræða svo framsækinnar tegundar að hlýtur að teljast byltingarkennd í vorum hópi. Er skemmst frá því að segja að þegar við komum niður í Hlíðar vorum við fóstbræður búnir að stofna kvennadeild Hlaupasamtakanna. En það atvikaðist þannig að okkar í millum fórum við að ræða aðstæður heimafyrir og töldum þá úrlausn sennilegasta að innvikkla konurnar í starf Hlaupasamtakanna. Við vorum innilega ánægðir með framtakið, sem lýsir bæði framsýni og áræðni, að ekki sé talað um jafnréttissýn. Þeir Björn og Einar Þór buðu þegar fram krafta kvenna sinna í þágu hinnar nýju deildar og töldu að þær gætu átt mikilvægt framlag í uppbyggingu þessarar merkilegu starfsemi. Hugsunin var sumsé sú að fá konur duglegra hlaupara til þess að hætta kvabba um að mikill tími fari í hlaup, mæta þess í stað til hlaupa og taka þátt í herlegheitunum, hætta í rándýrum líkamsræktarstöðvum sem skila engum árangri en taka þess í stað þátt í ódýru sporti og uppbyggilegu. Af þeirri ástæðu voru eftirtalin drög að reglum fyrir kvennadeild Hlaupasamtakanna samin:
1. Tilgangur með starfi sérstakrar kvennadeildar Hlaupasamtaka er að efla félagsanda meðal ektakvinna hlaupafélaga þannig að þeim glæðist skilningur á mikilvægi hlaupa og hætti þarafleiðandi kvabbi sínu um að hlaup taki of mikinn tíma frá fjölskylduvafstri.
2. Eiginmenn kvenlegra hlaupafélaga geta átt aðild að kvennadeild Hlaupasamtakanna séu ... (þurfum að hugsa þetta aðeins betur)
3. Markmiðið með starfrækslu kvennadeildar er að efla samstöðu meðal eiginkvenna hlaupara sem vantar skilning á mikilvægi hlaupa og skilja ekki hvers vegna hlaup þurfa að taka tíma frá hefðbundnum og eðlilegum fjölskylduskuldbindingum.
Þeir Björn og Einar vildu fá frekari ákvæði inn í reglurnar um þjónustu kvenna á hátíðum í Samtökunum, svo sem að þær skyldu settar í að hella upp á kaffi, baka kökur, þeyta rjóma og annað í þeim dúr, en ritarinn, sem er einn staðfastur femínisti og bolsjévík, hafnaði með öllu slíkum tillögum frá þessum eftirblívnu félögum okkar, sem enn eiga eftir að taka út nokkurn þroska. Kvennadeildin er sem sagt stofnuð og við væntum þess að eiginkonur félaga muni flykkjast undir merki hennar til þess að hafna daunillum líkamsræktarstöðvum og fara út í hreina loftið að hreyfa sig.
Þetta sýnir náttúrlega hversu gefandi og skapandi hlaup eru og hversu hugmyndaríkir hlauparar eru þegar þeir komast á flug. Við héldum bara áfram fóstbræður að spúa út hugmyndum og vorum óstöðvandi. Það var farið hefðbundið um Veðurstofuhálendi, Hlíðar, Klambra, Hlemm og niður á Sæbraut og þá leið tilbaka til Laugar. Er komið var tilbaka (og það skal viðurkennt að ég var með þeim seinustu, við fóstbræður, blómasalinn), var stemmning góð. Þá fóru menn á flug og skildu okkur aumingjana eftir. En blómasalinn er góður félagsskapur, við áttum gott samtal á leið okkar um Sæbraut, Svörtuloft, Geirsgötu, Mýrargötu og Ægisgötu. Fórum hægt, enda ekki að stefna að neinu. Aðrir á undan okkur.
Föstudagur. Pottur þéttsetinn. Mætt Sif Jónsdóttir sem þreytti Amsterdammaraþon nánast án aðstoðar fótanna, hún var slösuð og meidd og meiðzlin fóru bara versnandi en ekki bessnandi eftir því sem á hlaup leið. Próf. Fróði mætti seint til Potts. Hann var með umbúðir vinstra megin og sagði að "þeir" hefðu fjarlægt eitthvert líffæri, einhvern dælufjanda, sem gerði ekkert gagn. Sér liði miklu betur á eftir og væri miklu léttara að hlaupa nú en áður. Viðstaddir bentu honum á að s.l. miðvikudag hefði hann haft umbúðir hinu megin, hægra megin. "Nú? - var það?" sagði prófessorinn alveg hlessa.
Föstudagar eru alveg einstakir - þá er hlaupavikunni lokið og við erum í fullkominni afslöppun. Nú er að huga að árshátíð og Fyrsta Föstudegi, sem er næsta Föstudag. Þurfum að finna lókal fyrir árshátíð, skemmtiatriði og fleira í þeim dúr. Vonandi gengur það vel. Ég saknaði góðra félaga í hlaui kvöldsins, Magnús mætti að vísu í pott og sat lengi, en Birgir og Jörundur eru slíkar lykilpersónur í þvi sem framundan er að þeir mega ekki láta undir höfuð leggjast að mæta til hlaupa. Stærsta verkefni Samtakanna er að sannfæra okkar traustasta félaga og vin að hans staður sé hjá okkur. Einelti, skítkast og illt umtal sé okkar helzta og bezta aðalsmerki. Þar er engum hlíft og enginn undanskilinn. Framundan er Fyrsti Föstudagur og árshátíð sem haldin verður í heimahúsi. Meira um það seinna.
30.10.2008 | 20:25
Stolt af stelpunum
29.10.2008 | 21:45
Hlaup gerast bara betri - hvar endar þetta?
Sumir vildu fara langt, aðrir millilangt. Ágúst ætlaði 30 km, nýbúinn með maraþon´og fór 18 km í gær. Hann kvaðst hafa farið maraþonið hálfsofandi enda fór hann á 3:41 sem er hans fjórði lakasti tími. Jæja, hvað um það, Birgir á gormum og blómasalinn með balaklövu sem minnti einna helzt á höfuðbúnað kvenfólks í arabalöndum. Fórum hægt af stað á 6 mín. tempói, en settum fljótlega upp hraðann. Ég lenti í hópi með Flosa, dr. Jóhönnu, Jóhönnu "yngri", Flosa, Unu, Frikka, Birni, Bigga - og svo náði Rúnar okkur inn við Borgarspítala, eftir að hafa fylgt byrjendum af stað út að Skítastöð.
Við vorum góð! Við vorum flott! Mikill hraði, ekkert slegið af. 5 mín. tempó. Getur þetta gengið, hugsaði ég. Fleiri hugsuðu þannig. Þetta gat gengið, við réðum við tempóið, við gátum þetta, Þess vegna var þetta gaman. Brekkan upp hjá Borgarspítala upp að Bústaðavegi var ekki eins erfið og síðast, haldið inn í Háaleitishverfið og yfir göngubrú hjá Fram-heimili. Þetta heitir Þriggjabrúahlaup, þó það sé strangt til tekið aðeins tveggja brúa, því við förum ekki yfir göngubrúna hjá Grand-hótelinu heldur förum sem leið liggur niður á Sæbraut. Þar var hraðinn aftur settur upp og farið of hægt ef eitthvað var.
Það var ljóst að sárlega vantaði analytiker og álitsgjafa til þess að fara yfir málefni Sterling flugfélagsins. Einnig komu mál REI til umræðu og Geysir Green Energy - menn spurðu sig: hvernig hefði þetta ekki getað farið ef...? Hér söknuðu menn leiðsagnar félaga okkar Vilhjálms og varð ákafur grátur í potti yfir að njóta ekki lengur skýringa hans á því sem við dauðlegir skiljum ekki. Í potti var jafnframt hreyft því máli er jafnan til framfara horfir: árshátíð. Nú er komið að árshátíð Samtaka Vorra og þarf að fara að huga að salarkynnum, næringu og skemmtiatriðum. Þrátt fyrir dökkar horfur í efnahagslífi þjóðarinnar fellur árshátíð Hlaupasamtakanna ekki niður. Né heldur hið rómaða jólahlaðborð er menn mæta með fjölskyldur og vini og eiga kristilega kærleiksstund saman.
Eftir hlaup varð mér enn og aftur hugsað: hvílík gæfa að fá þessa fjármálakreppu, fjölmargir hlauparar sem hafa verið settir í farbann eru í slíku fantaformi að annað eins hefur ekki sézt í áraraðir. Ég er farinn að kvíða uppsveiflunni þegar ráðuneytisfólk verður aftur farið að flykkjast í flugvélarnar og fairð að missa af hlaupi, missa sig í áti og ólifnaði. Ekki gott. Hlaup kvöldsins var einstök upplifun sem fer í reynslusafnið og minningabankann sem eitt af þessum ógleymanlegu.
Vel mætt n.k. föstudag þegar við munum enn og aftur láta móðan mása og ... nei.
27.10.2008 | 21:30
Hnípinn hlaupahópur saknar vinar í stað
Ynidslegt haustveður, napur vindur sem beit mann í andlitið, en auð jörð. Þjálfarar mættir. Rúnar flutti ræðu um mikilvægi þess að halda hita á svæðum sem hætt væri við meiðslum. Ekki voru gefnar út leiðarlýsingar, sem fólkinu smalað niður á Ægisíðu, þar var farið á léttu tempói inn að Skítastöð. Þar var gefinn instrúx um fartlek (Ágúst sem betur fer víðsfjarri!), fyrst 2 mín. sprettur, 2 mín. hvíld, 3,5 mín. sprettur, 3,5 mín. hvíld, 5 mín. sprettur, 5 mín. hvíld og svo trappað niður í sömu tímum. Við af stað og var bara gaman að spretta úr spori. Rúnar, Eiríkur og Benni fremstir, svo kom Margrét og e-r með henni, þar á eftir við Bjössi, blómasalinn og Flosi. Farið um Nauthólsvík og út að Suðurhlíð. Upp á sæmilegu tempói. Uppi við Perlu var ritara farið að líða vel og við fórum niður stokkinn á fullri ferð. Við Einar vorum í góðum gír og tókum þétting frá göngubrúnni yfir Hringbraut og út að Sóleyjargötu, Bjössi og Flosi skammt undan.
Þetta var eitt af þessum frábæru hausthlaupum, stuttum og snörpum. Það er mikil blessun að vera kominn í ferðabann, nú mætir maður í öll hlaup og lætur skeika að sköpuðu, ekkert óhóf í mat eða drykk í útlöndum, engar slímsetur í flugvélum, bara hreyfing fjórum sinnum í viku. Eiginlega eru þetta lífsgæði af fyrsta flokki sem sjást bezt á holningu ritara, ennþá í sama góða forminu og í Berlín. Meira af hinu sama n.k. miðvikudag.
26.10.2008 | 14:15
Hetjur hlupu um héruð
Eftir mikinn orðaflaum var loks hægt að leggja af stað, en ÓÞ bað um orðið á tröppum VBL. Hann kvaðst hafa farið í verzlunarmiðstöð á höfuðborginni í gær og þar hefði vart verið þverfótað fyrir fólki í innkaupum og hann hefði ekki komist spönn frá rassi fyrir fólki sem kom til hans og vildi óska honum til hamingju með árangur Vilhjálms í spurningakeppninni. Vilhjálmur kvaðst ekki hafa orðið var að neinn vildi óska honum til hamingju. Þannig var það nú þennan sunnudagsmorgun. Allvel mætt, auk áðurnefndra voru Flosi og Bjarni.
Vindur á norðvestan, en ekkert sérlega kalt. Engu að síður leið okkur eins og hetjum sem eru að leggja í ófærur. Afar hægt farið af stað. Jörundur hélt áfram ræðu sinni sem beindist að Vilhjálmi og hafði hátt. Vilhjálmur sagði: "Jörundur, haltu áfram!" þar með segjandi að hann frábæði sér pólitíska einræðu prentarans róttæka. Jörundur lét ekki segjast og hélt áfram með Vilhjálmi. Við aðrir á undan.
Í Nauthólsvík var stoppað eins og ævinlega er gert á sunnudagsmorgnum. Þar var flutt persónufræði svo margslungin og ítarleg að hlýtur að vera öllum viðstöddum ógleymanleg. Spurt var hvernig Vilhjálmur tengdist Oddi í Glæsi. Hér stóð m.a.s. VB á gati, en ÓÞ flutti með óbrigðulu minni og þekkingu tölu um ættir og tengsl sem lýsti mikilli mannþekkingu og persónufræði og setti frænda aftur á stall með mestu persónufræðingum Lýðveldisins. Síðan var spurt: hvert var bílnúmer Odds í Glæsi? Menn stóðu á gati - ýmsar getgátur en loks var gefin von um svar næsta sunnudag.
Það varð að halda áfram vegna þess að menn kólnuðu hratt niður. Loks gerðist það í kirkjugarði að Vilhjálmur náði að hrista Jörund af sér og fékk að hlaupa óáreittur. Við Miklubraut vorum við rétt búnir að valda stórslysi, kona sem kom akandi á bíl sínum rak augun í okkur og varð svo mikið um að hún snarhemlaði, og var nærri því búin að fá tvo bíla aftan á sig. Sem betur fer slapp þetta til, en tæpara mátti það vart standa.
Á Rauðarárstíg sagði Ólafur frændi minn okkur sögu af hrokkinkolli í Svörtuloftum sem hefði verið innan um fólk og menn hefðu tekið eftir miklum hlunki á handlegg hans, úri sem minnti á Rolex. Hann hefði tekið hlunkinn af hendi sér, lagt fyrir framan sig og sagt: "Þetta gaf Berlusconi mér." Vilhjálmur hafði strax skoðanir á málinu, kvaðst hafa hitt hrokkinkollinn sjálfur og beðið hann um að leyfa sér að skoða hlunkinn - og þetta hefði alls ekki verið neinn Rolex-hlunkur. Jæja, alltaf skal hann slá mönnum við og barna sögur þeirra.
Við fórum Laugaveginn vegna norðanáttarinnar, fáir á ferli, en þó voru kaffihús opin og reytingur af fólki þar innandyra, sjálfsagt allt útlendingar. Svo slitnaði hlaupahópurinn sundur og menn komu mjög misjafnlega til Laugar.
Vel mætt í pott - og Baldur flutti enn erindi sitt um worst case scenarios sem fyrst birtist í tölvupósti. Þar með setjandi okkur í nokkurn vanda - en ÓÞ og Jörundur reyndu að bjarga okkur með því að flytja enn og aftur sögur morgunsins. Farið yfir Útsvarsþáttinn og leitað eftir réttum svörum. Skyndilega birtist fólk sem alla jafna ætti að vera að hlaupa með okkur: Björn, blómasalinn og dr. Jóhanna. Engar skýringar gefnar á fjarveru. Setið góða stund og rætt um stöðu mála, góða Spaugstofu í gær. Hlaupasamtökin áttu tvo hlaupara í Haustmaraþoni, próf. S. Ingvarsson og próf. Fróða - báðir á fínum tímum. Í gvuðs friði.
24.10.2008 | 21:56
Lýst yfir söknuði - hvar er blómasalinn?
Hvað gefur okkur hlaupurum gleði? Hvað knýr okkur til þess að hlaupa áfram, þrátt fyrir að vetur er brostinn á og helztu áfangasigrar sem stefnt var að frá byrjun árs séu að baki? Enginn hvati lengur, ekkert að stefna að hvers vegna hlaupum við? , það kom í ljós í hlaupi dagsins. Menn hlaupa fyrir ánægjuna, fyrir samveruna, fyrir félagsskapinn, fyrir gáfurnar, fyrir kímnina, fyrir sögurnar, fyrir manngæðin. Og fyrir endorfínið, sem að vísu streymir í litlu magni þessar vikurnar, sökum kulda og þess hvað maður er latur að hreyfa sig.
Þeir sem mættir voru eru gamalkunnir og gamalgrónir hlauparar, og bara, gamlir. Nema kannski Rúna. Aðrir mættir: Dr. Friðrik, Flosi, Bjarni, Bjössi, Biggi, ritari, Benni. Þéttur hópur og engir þjálfarar þannig að frelsið ríkti ofar hverri kröfu. Við réðum okkur sjálf og gátum ákveðið hvert yrði farið og hversu hratt. Af þeirri ástæðu var bara farið hefðbundið. Það var kalt í veðri, og fór kólnandi, frost á jörðu og mátti hafa allan vara á. Flestir sæmilega klæddir, enginn var á stuttbuxum, en þó kom sú hugmynd upp að hlaupa nakinn til þess að mótmæla einhverju. Ekki vitað hverju eða hverjum.
Þéttur hópur og allir samtaka um að hlaupa af gleði og ánægju, láta lönd og leið vangaveltur um vegalengdir og tíma. Nei, nei, það var of gott til að vera satt. Benni og Bjössi hurfu á undan okkur hinum. Flosi og Rúna. Ég sat uppi með Bigga sem hafði frá mörgu að segja eins og venjulega. 20 m fyrir aftan okkur voru svo Bjarni og Friðrik og virtist verða vel til vina. Þannig var skiptingin í dag á Sólrúnarbraut.
Fílingur góður en menn eitthvað stirðir. Biggi hættur við maraþon sökum sinameiðsla og því verður Ágúst einn á ferð á morgun. Hált undirlag og þurftu menn mjög að gæta fóta sinna. Ég náði til dæmis að segja Birgi ævisögu mína á leiðinni frá grásleppuskúrunum við Ægisíðu og út að Flugvelli, hann var mjög impóneraður og kvaðst vilja breyta lífi sínu til samræmis við áherzlur mínar og gerast Framsóknarmaður. Ég hváði og spurði hvaðan hann hefði fengið þá hugmynd: jú, þú sagðist hafa verið Framsóknarmaður í tvö ár, gengið um með vinstraglott í tvö ár 1971-1973. Hér var mér öllum lokið. Ég hef löngum haft Birgi grunaðan um að vera svag fyrir Framsókn, en hér kom hann út úr skápnum og lýsti því beinlínis yfir að Framsókn væri framtíðin, þar væri örlögsíma æskunnar fólgin. Ég leiddi þetta hjá mér, enda vorum við að nálgast Nauthólsvík, og við sáum Bjössa og Benna hverfa upp Hi-Lux, framan við okkur voru Rúna og Flosi, en að baki okkar kom Bjarni fnæsandi.
Einhvers staðar í námunda við Hi-Lux sameinuðumst við og vorum orðin fimm: Flosi, Rúna, Birgir, Bjarni og ritari. Sáum grunsamlega bíla og töldum okkur vera að upplifa ný Hi-Lux ævintýr en svo var ekki, allt í sómanum. Upp brekkuna, tekið á því. Svo var nú bara skeiðað áfram hefðbundið.
Menn söknuðu blómasalans. Því var eðlilegt að talið bærist að honum. Rætt var um hin efnilegu og glæsilegu börn hans og mærðu menn þennan félaga okkar og töldu hann afbragð annarra að upplagi og lífshamingju.
Þetta var svolítið flokkaskipt í dag. Björn og Benedikt voru einhvers staðar langt á undan okkur og koma ekki við okkar sögu. Flosi og Bjarni þar á eftir og köru að fara Sæbraut. Við hin skynsömu, ég, Birgir og Rúna, fórum Laugaveginn til þess að sleppa við norðangarrann. Greið leið vestur úr og ekki margt manna á þessari helztu verzlunargötu Reykvíkinga. M.a. rifjaði Rúna upp æskudaga sína með blómasalanum í Melaskóla og kom þar okkur margt á óvart. Við Birgir þrýstum á Rúnu að segja hið sanna, var hann svona, var hann hinsegin, hvernig var hann? En komumst lítt áleiðis.
Pottur heitur og góður og menn voru rólegir, tóku sér góðan tíma til þess að ræða málin. Mættir auk hlaupara Stefán og dr. Einar Gunnar.
Hlauparar eru stoltir af félaga sínum, Vilhjálmi Bjarnasyni, sem sýndi snilldartakta í Útsvari í kvöld.
Björn upplýsti að boðið væri til veizlu í félagsheimili Framsóknarmanna á Seltjarnarnesi í kvöld. Hvert tilefnið var fékkst ekki upplýst, en þó virtust óhugnanlega margir vera á Framsóknarslóðum í kvöld.
Pistill Ritara | Breytt 25.10.2008 kl. 09:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.10.2008 | 22:01
Orða er vant til að lýsa hlaupi
Ekki mjög margir mættir í hlaup dagsins. Það bar helzt til tíðinda í útiklefa að Björn uppgötvaði að hann var buxnalaus. Fór í stuttbuxur í þeirri von að einhver góð sál (t.d. Þorvaldur) myndi lána sér síðbuxur. En Þorvaldur mætti ekki. Pétur ekki á staðnum til þess að redda málum. Björn eins og grár köttur út um allt að reyna að bjarga þessu. En komst að þeirri niðurstöðu að hann yrði að hlaupa í stuttbuxum, eða réttara sagt, í sundskýlu, ef maður á að vera nákvæmur. Annað eins hefur nú gerst: Bjarni hljóp ber að ofan í sumar. Það var ekki fögur sjón. En það var í sumar. Nú er kominn nístingskaldur vetur. Og þar munar. Félagar Björns hlógu innilega að ástandinu og höfðu greinilega mikla ánægju af þessum vanda hans. Á endanum lét þó Birgir tilleiðast og léði Birni stuttbuxur, sem björguðu því sem bjargað varð.
Mættir: Flosi, Björn, Bjarni, Ágúst, Ólafur ritari, Benedikt, Rúnar, Birgir, Margrét, Una, Ósk, Hjálmar og ein stúlka í viðbót sem mig vantar nafnið á. Þokkaleg mæting, en þó minni en marga óveðursdaga. Það er eins og það sé vinsælla að hlaupa þegar veður eru válynd. Snjór á jörðu eins og menn vita, kalt en ekki mikill vindur. Enn er bjart þegar við leggjum í hann, en orðið dimmt þegar komið er tilbaka og því eru sumir hlauparar í endurskinsfatnaði. Það mátti hlaupa varlega því víða var hált og það tefur alltaf för að þurfa að huga að undirlagi. Úti á stétt var þjálfari í einhvers konar afneitun eða mórölskum vanda - hann var beðinn um leiðbeiningar, en sagði bara: til hvers, þið farið ekkert eftir þessu! Hvaða vitleysa, sögðu menn, og heimtuðu leiðbeiningar. Féllst þá þjálfari á að gera tillögu um hlaupaleið. Þriggja brúa hlaup varð niðurstaðan, sláandi líkindi með Þriggja gljúfra stíflu í Kína. Svona á sinn hátt.
Það er jafnan lagt í hann á rólegu nótunum. Samt var einhver æðibunugangur í Reyni og Benedikt, og Flosa, þeir voru langt á undan öðrum þegar á Ægisíðu. Sjálfur var ég ekki vel upplagður fyrir hlaup, fann fyrir einhverju í kálfa og saknaði þess andlega styrks sem maður bjó að í aðdraganda maraþonhlaups. Nú eru hlaupin bara raun, og maður vill helst sleppa þeim. En það má ekki bugast, það verður að halda úti starfsemi Hlaupasamtakanna. Líklega þarf að fara að blása til félagslegrar samkomu og þétta raðirnar.
Leiðir skildi við Kringlumýrarbraut, við vorum sjö sem héldum áfram og stefndum á Brýrnar þrjár, aðrir fóru Suðurhlíðar. Við sem héldum áfram fórum upp hjá Borgarspítala, yfir Bústaðaveg og inn í Háaleitishverfi, þaðan hjá Kringlu, yfir Miklubraut, hjá Fram-heimili (hélt niðri í mér andanum), út að Kringlumýrarbraut og þá leið niður á Sæbraut. Hér var mér farið að líða bærilega og hélt í við hitt liðið án þess að hafa mikið fyrir því. Sæbrautin var breið og greið, en dimm, og fólk á ferli. Hér var heldur bætt í og farið á góðu tempói.
Það var tekið á því í þessu hlaupi og menn vel heitir er komið var til Laugar. Þá voru Suðurhlíðingar að hypja sig heim og vildu ekki deila með okkur menningarstund í potti. Svo að það voru aðeins Benedikt, Flosi, Ágúst og ritari sem áttu gæðastund í barnapottinum. Þar kom góð saga. Hún er svona: Kona nokkur var slæm í mjöðmum og átti erfitt um svefn. Hún gat hvorki sofið á hægri né vinstri hlið. Ráðagóður vinur spurðu hví hún svæfi þá ekki á bakinu: Ja, þá er hann (við skulum segja maður hennar heiti Guðjón) Guðjón minn kominn um leið. En, geturðu þá ekki bara sofið á maganum. Þá brosti konan góðlátlega og sagði: Þú þekkir greinilega ekki hann Guðjón minn. Þessa sögu sagði okkur prófessor Fróði. Og í beinu framhaldi voru rifjaðar upp sögur sem voru sagðar hér á hlaupum á árum áður og voru svo grófar að forhertir karlmenn bliknuðu eins og fermingardrengir. Hér varð nostalgíu vart. Einnig var rætt af upplýsingu um einelti. Þar erum við félagar í Hlaupasamtökum Lýðveldisins sérfræðingar.
Ágúst stefnir á maraþon á laugardag. Maraþon er ræst við Elliðaár um kl. 9. Hlaupaleiðin er með endemum óintressant: fram og aftur blindgötuna. Frá Elliðaám að Hofsvallagötu, sömu leið tilbaka, og svo aftur sama rútt. Þannig geta menn reiknað út hvenær þeir vilja vera staddir við Hofsvallagötuhorn til þess að hvetja Ágúst áfram. Fyrst rétt fyrir 10, svo aftur kl. 12. Ef menn nenna að bíða. Sem við hljótum að vera reiðubúnir að gera fyrir félaga okkar. Tala ekki um ef svo skyldi fara að Birgir okkar tekst á við þetta verkefni líka.
En venjulegir hlauparar hlaupa næst á föstudag kl. 16:30. Vel mætt.