11.2.2010 | 11:38
När Fantomen rör på sig står blixten stilla
Hellingur af fólki mættur til hlaups á miðvikudegi. Samantekin ráð hjá sumum um að hlaupa langt. Það voru Ágúst, Flosi, blómasalinn og ritarinn. Ekki styttra en Stíbbla var sagt. Aðrir ætluðu Þriggjabrúa vaxandi - og enn aðrir vafalaust eitthvað styttra. Lagt upp rólega. Hjá Skítastöð (Drulludælu) mátti fara að bæta í hraðann, en langhundarnir áttu ekki að bæta í hraðann fyrr en þeir væru hálfnaðir.
Allt gekk þetta nú vel, en við Nauthólsvík heyrðist ægilegur hávaði. Þá blandaði skyndilega Benzinn sér í hlaupið, en hafði ekki sést við upphaf þess. Þarna var hann mættur, þessi farlama maður, og hljóp eins og herforingi, milli þess sem hann jós svívirðingum yfir aðra hlaupara. Er komið var á Ristru Flanir og eftir Lúpínuvelli varð sú breyting á afstöðu manna að Jörundur kom æðandi fram úr okkur blómasalanum og Benzinum, leit hvorki til hægri né vinstri, og anzaði ekki áköllum okkar. Þetta gat aðeins endað illa.
Um þetta leyti þurfti ritari að létta á sér og missti við það af félögum sínum. Ekki náði hann þeim fyrr en við Víkingsvöll, þar biðu prófessorinn og blómasalinn, við fórum Goldfinger og brekkuna yndislegu sem þeirri leið tilheyrir. Þaðan um Mjódd og upp að Stíbblu. Líðan allgóð og hraði þokkalegur. Þó átti hann eftir að aukast. Ágúst hefur þann háttinn á að teyma mann sem allra lengst út úr borginni, gefa þá í og skilja mann eftir. Þetta gerði hann hér líka. Hann hvarf sjónum og bómasalinn með honum, ég var einn í myrkrinu í Árbænum. Er ég kom niður að Breiðholtsbraut ákvað ég að snúa á þá og fara Stokk frekar en Fossvog. Tók þétting frá Vodafone-höll og út að Háskóla. Kom á Plan um svipað leyti og Ágúst, hann varð mjög hissa.
Enn hissari varð blómasalinn, því að hann kom á eftir mér. Hann spurði hverju þetta sætti. Ég svaraði: "Einar minn, hefurðu ekki heyrt gamla, sænska djungelordspråket - när Fantomen rör på sig, står blixten stilla. Þegar Skuggi hreyfir sig stendur þruman kyrr." Með þessu gaf ég í skyn að ég hefði í reynd farið fram úr þeim á leiðinni. En viðurkenndi svo að ég hefði "stytt" - ef styttingu er hægt að kalla. Þeir fóru sumsé fulla 22 km, ég eitthvað styttra. Bjarni og Jörundur fóru 14, Þriggjabrúa með lengingu um Hljómskálagarð. Ekki þori ég að spá í hvað aðrir gerðu. Af þessari ástæðu var vigtin hagstæð í morgun, fimmtudag, og fer bara batnandi.
Næst hlaupið föstudag kl. 16:30.
10.2.2010 | 21:19
Dell-tölvan klúðrar málum aftur
8.2.2010 | 21:14
Taco Bell tekur toll
Ýmislegt í boði, brekkusprettir í Öskjuhlíð, Stokkur, Hlíðarfótur, allt eftir smekk og prógrammi. Parísarfarar og fylgihnettir stefndu á spretti, aðrir ætluðu bara að leika sér. Farið rólega út, en áður en langt um leið var hersingin komin á fulla ferð. Fljótlega kom í ljós að einhverjir höfðu syndgað í hádeginu, játning lá fyrir: sumir voru teymdir gegn vilja sínum inn á Taco Bell þar sem snædd var sterk máltíð og drukkinn með hálfur lítri af ropvatni. Ætla menn virkilega aldrei að læra að forðast freistingarnar á hlaupadegi?
Farið út í Nauthólsvík, þar var snúið í brekkurnar, meðan einhverjir héldu áfram í Fossvoginn og enn aðrir sneru beinustu til baka. Við vorum nokkur sem tókum eina 8 320 m spretti í löngu brekkunni í Öskjuhlíð, innan um bílaperrana. Það var smokkfullt af bílum þarna og fullkomlega óskiljanlegt hvað fólk er að gera þarna. Samkomulag um að fjarlægja alla vegi þarna eftir sveitarstjórnakosningar í vor, í mesta lagi skilja eftir bílastæði, svo getur fólk bara fengið sér göngutúra um göngustíga og iðkað heilbrigð samskipti við aðra.
Eftir spretti var snúið tilbaka og bætt í hraða og endað á góðu tempói, 13,7 km lagðir að baki. Góð æfing. Pottur stuttur og snarpur, Benzinn með læti við útlendinga. Næst farið á miðvikudag, langt, ekki styttra en Stíbbla.
7.2.2010 | 15:57
Á vorfögrum sunnudagsmorgni
Þetta var í alla staði hefðbundið hlaup, að undanskildu því að heldur færri stopp voru gerð og styttri sögur sagðar. Ég held ég megi fullyrða að ekki ein einasta ættrakning hafi farið fram og verður það að teljast afturför í hópi eins og okkar. Nóg var af hefðbundinni umfjöllun um bankahrun og fjársvik ýmiss konar. Einnig var a.m.k. ein gamansaga í anda Kirkjuráðs sögð. Þrátt fyrir langhlaup gærdagsins vorum við blómasalinn bara sprækir og tókum alveg þokkalega á því, alla vega svitnaði undirritaður á hlaupinu, sem gerist ekki oft í sunnudagshlaupum.
René fór aðra leið en við og hvarf okkur í Skerjafirði. En við áfram í alveg yndislegu vorveðri. Þegar við komum á Hlemm sáum við hann aftur þar sem hann skeiðaði niður Snorrabraut. Við Sæbraut gerðust stórtíðindi, René skaut Þorvaldi ref fyrir rass með svo glæfralegu stökki fram fyrir bifreiðar sem þar voru á ferð að það munaði ekki nema nokkrum sentimetrum að hann yrði keyrður niður. Það hvarflar að mér hvort hann hafi misskilið eitthvað aðdáun okkar á Þorvaldi, að hann haldi að við lítum á þessi bílastökk sem sérstakt hetjubragð. Þetta endar náttúrlega bara með skelfingu, eins og Biggi sagði. Einhver endar ævina framan á stórri bílrúðu og það koma bara menn í hvítum göllum með kíttispaða að skafa leifarnar niður í svarta plastpoka.
Á Geirsgötu var hraði aukinn og tekinn góður sprettur, sem sýnir að menn eiga heilmikið eftir þrátt fyrir langhlaup gærdagsins. Teygt við Laug. Blómasalinn gerði úttekt á bíl Jörundar sem er farinn að lýsa rauðu ljósi og skýring finnst ekki á. Atli þjálfari KR kvartaði yfir því að ungviðið kynni ekki einföldustu líkamsæfingar, svo sem að sippa. Nú væri ekki hægt að hreyfa sig nema tengjast e-i maskínu sem knýr manninn áfram, hlaupabretti, stigtrappa eða hvað þetta heitir. Það er eitthvað annað með ykkur, sem þurfið ekki annað en guðsgræna náttúruna að hreyfa ykkur í!
Fámennt í potti, Baldur mættur og taldi Ó. Þorsteinsson vera á Túndru. Rætt um helztu verk í leikhúsum borgarinnar. Talað um tíma og spurt: hvað er réttur tími á Íslandi. Stuttu síðar komu frú Helga og Stefán - en fleiri voru ekki mættir þegar ritari þurfti að hverfa á brott í bröns uppi í sveit.
Á morgun hefst ný hlaupavika, mæting stundvíslega kl. 17:30. Sprettir, trúi ég. Nú fer þetta bara versnandi.
6.2.2010 | 13:09
Laugardagshlaup hlaupahópa 6. febrúar 2010.
Farið sem leið lá út Laugardalinn, inn í Elliðaárdal, Mjódd, Kópavog og stefnan sett á Dalinn. Ég hljóp upp á hól til þess að gá hvort lífsmark sæist í Lækjarhjalla, átti alveg eins von á að sjá húsbóndann úti á svölum í náttsloppi reiðubúinn að heilsa hlaupurum. En það var aldeilis ekki! Sjaldan hef ég séð jafn kirfilega dregið fyrir alla glugga og öll opnanleg fög stöguð aftur. Ekkert lífsmark á því heimilinu.
Hlaup gærdagsins sat í manni, 11,3 km á 5 mín. tempói. Það vissi maður sosum fyrir hlaup. Margt var ágætra hlaupara á ferð í dag, og virtist manni jafnvel nokkurt kapp hlaupa í menn á Miklubrautinni. Varð mér sem snöggvast hugsað að einhverjir ætluðu að taka þessu sem keppnishlaupi, en einnig má líta svo á að þeir hafi tekið þessu sem kærkomnu tækifæri til þess að láta gamminn geisa.
Í Dalnum fór þreyta að segja til sín, en ég var ákveðinn í að klára mína 19 km í dag. Kjagaði því fyrir Kársnesið og áfram í átt að Kringlumýrarbraut. Er þangað var komið náði blómasalinn mér loksins, en einhverra hluta vegna hafði ég haldið honum fyrir aftan mig allan tímann. Spyrja má hvor okkar sé á leið í Parísarmaraþon! Ég hafði með mér appelsínusafa og fannst hann sízt verri en orkudrykkirnir sem maður hefur verið að kneyfa. Kringlumýrarbrautin var anzi erfið og í kringum mig var fólk sem greinilega var á svipuðum stað í æfingum og ég, margir þurftu hreinlega að ganga.
Það var ljúft að koma tilbaka og hitta félagana við Laugar. Boðið var upp á nýja próteindrykkinn frá MS, Hleðslu. Hann var fínn. Svo var bara skellt sér í heitan pott og slakað á. Sat um stund með Frikka og Kára og við horfðum á Svía, m.a. Línu Langsokk.
Frábært hlaup, frábært framtak! Næst verður það Grafarvogur, Árbær, ÍR - og svo Hlaupasamtökin í byrjun júní.
5.2.2010 | 21:33
Ótrúlegt hlaup á Fyrsta Föstudegi - en hvar var fólkið?
Samkomulag um að fara hægt. En menn voru sprækir og því engin ástæða til þess að halda aftur af sér. Við sáum að blómasalinn fór sér hægt og töldum að það væri vegna buxnanna og hófum að herma eftir honum, hlupum eins og spýtukallar. En ritari, sem er glöggur maður, sá að eitthvað meira bjó að baki. Lét hann þess getið við próf. Fróða að líklega væri hér hádegisverði um að kenna. Á Ægisíðu var tempóið um 5:15 - og það var bara gefið í alla leið út í Nauthólsvík. Þar héldu hópinn prófessorinn, Biggi, Eiríkur, Þorvaldur, Ragnar og ritari. Við fórum upp Hi-Lux, og viti menn, það var jeppi í hi-luxinu, hvað var að gerast? Einn karlmaður reyndist í jeppanum og ekkert að gerast, en styggð komst að manninum og hann ók með hraði í burtu.
Við upp brekkuna á hægu tölti, bílar hér og hvar og greinilegt að menn höfðu ýmislegt á prjónunum á þessu föstudagseftirmiðdegi. Biðum er upp var komið eftir þeim sem á eftir komu, en það var til lítils. Áfram upp með kirkjugarði og inn í hverfi. Ég gladdi viðstadda með þeirrí frétt að Danir legðu áherzlu á það í formennskuprógrammi sínu í norrænni samvinnu þetta árið að bjóða upp á úrræði fyrir fullorðna með athyglisbrest. Gerði ég að tillögu minni að Hlaupasamtökin sæktu um styrk til þess að rannsaka athyglisbrest meðal hlaupandi karlmanna á miðjum aldri sem þreyta ca. 10 km hlaup á hægri ferð og eiga erfitt með að fylgjast með frásögnum og halda þræði.
Við bættum heldur í eftir því sem leið á hlaup, enda prófessor Fróði í forystu og farinn að gerast þorstlátur. Farið um Hlemm og niður á Sæbraut. Þaðan hljóp þessi þvaga vestur úr. Ég ákvað að fylgja Bigga til baka, enda er hann töluvert bakk með sitt líkamlega helsi. Nema hvað við héldum góðum hraða, fórum um Geirsgötu og Ægisgötu, prófessorinn lengdi vestur úr út í Ánanaust og þaðan tilbaka til Laugar.
Er komið var til Laugar var blómasalinn kominn þar á undan okkur. Hann játaði að hafa misst sig í hádeginu, etið 300 gr hamborgara með skinku, beikoni og osti. Þetta var ástæða þess að hann var svona hægur í hlaupi dagsins. Þetta sá ritari þegar í upphafi hlaups. Blómasalinn náði sér aldrei á strik í hlaupinu, en hefur lýst yfir því að hann ætli að taka langhlaup morgundagsins með trompi.
Denni mætti í pott eftir hlaup og urðu mjög fróðlegar og skemmtilegar umræður, m.a. um einelti meðal miðaldra karlmanna í hlaupahópum. Sami hópur mætti síðan til Fyrsta Föstudags á Rauða Ljóninu - auk þess sem Frikki af Melabúðarfrægð skaut inn kollinum. Og Ólöf Þorsteinsdóttir. Í fyrramálið tekur síðan við langhlaup frá Laugum. Vel mætt!
3.2.2010 | 21:16
Hlaupasamtökin eru hjálparsamtök
Það var fremur svalt í veðri og einhver vindur og eins gott að vera vel klæddur. Haldið áfram austur úr eftir Nauthólsvík á hröðu tempói og hér fór maður fyrst að verða var við aðra hlaupara, próf. Fróða, Flosa, Jóhönnu og Hauk. Þau tvö síðastnefndu fóru ásamt okkur blómasalanum upp hjá Bogganum og skammt undan var Albert. En þau fóru mun hraðar en við og voru horfin áður en við vissum af. Við fórum þetta hefðbundna yfir Bústaðaveg, upp hjá Útvarpshúsi, yfir Miklubraut og tókum stefnuna framhjá Fram-velli. Þar reyndi á hjálpsemi hlaupara. Við sáum bíl sem var í vandræðum undir brúnni undir Miklubrautina, bíllinn ógangfær og ökumaður aleinn að reyna að ýta honum. Hér kom góðmennið upp í Einari og hann heimtaði að við kæmum þessum ökumanni til hjálpar. Bílar óku hjá og enginn gerði sig líklegan til þess að aðstoða. Þetta var ungur maður sem hafði fyllt á bíliinn og lent í vandræðum í beinu framhaldi. Einar reif upp vélarhlífina og byrjaði að juða í geymistengjum, við það fóru öll ljós að blikka og stuttu síðar rauk bíllinn í gang og ökumaðurinn gat haldið leiðar sinnar.
Albert varð mjög impóneraður af þessum þegnskap okkar blómasalans og spurði: "Eruð þið alltaf svona hjálplegir? Gerist þetta oft?" Við sögðum að þetta væri eitt af móttóum Samtakanna: ávallt reiðurbúnir! Við héldum áfram leiðar okkar og vorum léttir á okkur. Hér viðurkenndi Einar að téður ökumaður héti Ólafur og væri sonur sinn, bíllinn væri einnig hans. Eitthvað sló við það á aðdáun Alberts. Einar taldi upp öll bílhræin sem hann á víðs vegar um borg og hafa leikið í hinum ýmsustu kvikmyndum og aldrei fengið borgað fyrir. Þannig héldum við áfram masandi niður Kringlumýrarbraut og sáum við Suðurlandsbraut að hiti var kominn í mínus 3.
Er komið var á Sæbraut var veður aldeilis með ágætum og fundum við ekki nokkurn vind. Tókum allhratt tempó vestur brautina, gerðum stuttan stanz við vatnshana þar sem ég drakk, héldum svo áfram hlaupinu og fórum um Lækjargötu og Hljómskálagarð eins og tíðkast hin siðari misserin. Albert hafði orðið viðskila við okkur einhvers staðar á Sæbraut, en náði okkur aftur á Hofsvallagötu. Stuttu síðar komu Rúnar og Magga, Eiríkur og Frikki - en þau höfðu tekið spretti og farið 16 km. Við hinir enduðum í 14. Flosi og prófessorinn fóru upp að Stíbblu, 22 km. Flosi gerði þetta af góðmennsku sinni því að prófessorinn var svo hræddur í myrkrinu sem var á leiðinni. Góðar teygjur iðkaðar í Móttökusal. Aðrir sem hlupu í dag voru Kári og Anna Birna, Þorvaldur og Magnús, og vakti athygli að Jörundur hljóp hvorki í dag né heldur á mánudag, maður sem þykist hafa efni á að úthúða öðrum fyrir að sleppa einu gönguhlaupi á sunnudagsmorgni. Hann ætti að rífast meira!
Nú brá svo við að Sunddeild KR var búin að hertaka pottinn okkar og urðum við því að sitja í Örlygshöfn. Rætt um heilsufar Bigga og það sem framundan er hjá honum. Það er víst tiltölulega einföld aðgerð og viðráðanleg. Frikki sagðist treysta honum Unnari sínum til þess að gera hana með rúllupylsunálinni sinni og líma svo einhvern lepp á belginn á eftir, eða það sagði Bjössi kokkur að væri praxís. Deilt var um hvort hnémeiðsli væru útvortis eða innvortis. Að höfðu samráði við lækni skal upplýst að meinsemd sem ekki sést berum augum utan á skrokknum skilgreinist sem "innvortis" - og hafið þið það! Hnémeiðsli geta því talist innvortis ef þau eru inni í hnénu.
Nú er það svo að næstkomandi föstudag er Fyrsti Föstudagur - stefnt að því að halda upp á hann á Dauða Ljóninu. Félagar hvattir til að mæta, von er á óvæntum gesti! Daginn eftir er svo hlaupið frá Laugum kl. 9:30 í félagsskap hlaupara í öðrum hlaupahópum á Höfuðborgarsvæðinu.
Pistill Ritara | Breytt 4.2.2010 kl. 11:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.2.2010 | 21:18
Óvenjufáir hlaupa á mánudegi - Minnt á laugardagshlaup frá Laugum
Nema hvað, í dag var komið að mánudagshlaupi - sem þýðir bara eitt: sprettir. Nú eru ekki lengur tugir hlaupara mættir á mánudegi, eins og var í upphafi árs. Greinilegt er að vel meintur ásetningur um átak og breyttan lífsstíl er fyrir bí, fólk er farið að slaka á. Aðeins helztu hlauparar voru mættir, þar á meðal dr. Friðrik, Flosi, Magnús, Þorvaldur, Einar blómasali, Kári, Ósk, Hjálmar, Frikki, ritari, Þorbjörg K., Snorri, báðir þjálfarar, Ágúst, Sigurður Ingvarsson og Eiríkur. Og ská-tengdasonur Ágústs, sem ég man ekki hvað heitir. Þorvaldur snupraður af forstöðukonu fyrir að fylgja ekki prótókolli við komu til Laugar. Hlýlegar móttökur fengu Frambjóðandi Samtakanna, Hjálmar, fyrir ágætan árangur í kosningum helgarinnar, og Melabúðar-Frikki fyrir að vera meira áberandi í sjónvarpsrúðunni sl. sunnudag heldur en sjálfur Guðjón Valur. Kvaðst hann sæll yfir að hafa ekki aðhafst neitt misjafnt meðan á sýningu stóð.
Fórum í ágætisveðri upp á Víðimel og þaðan vestur úr út í Ánanaust og svo með ströndinni út á Nes. Hluti af hópnum hélt áfram um Gróttu, en aðrir settu stefnuna á Bakkavörina. Þar var gefin út skipun um 6-10 spretti upp brekkuna. Eftir sex slíka spretti vorum við blómasalinn búnir og héldum út á Lindarbraut, þaðan á Norðurströndina og tilbaka í nokkrum mótvindi, en á góðum spretti, út í Ánanaust og sömu leið til baka og komið var, Grandaveg og Víðimel.
Teygt vel og lengi úti á Plani og svo inni í Móttökusal. Upplýst að næstkomandi laugardag verður hlaupið frá Laugum kl. 9:30 í stórhlaupi laugardagshlaupara helztu hlaupahópa í Reykjavík. Var hvatt til þess að Hlaupasamtökin tækju þátt í þessu hlaupi og fjölmenntu. Síðar í vor mun okkur veitast sú ánægja að vera gestgjafar fyrir sambærilegu hlaupi frá Vesturbæjarlaug.
Pottur troðinn af glaðlegum hlaupurum sem ræddu margvísleg málefni, allt frá bíltúrum yfir Hellisheiðina og til Þorramtarins hjá Federico. Næsta föstudag er Fyrsti Föstudagur, ekki ráð nema í tíma sé tekið.
30.1.2010 | 15:15
Er það satt? Getur það verið?
Ástæða er til að nefna sérstaklega viðveru þeirra Þorvalds og Magnúsar, sem hafa ekki áður mætt á laugardegi eftir því sem ég bezt veit. Annars var þetta hefðbundna laugardagslið mætt. Hópurinn gisnaði fljótlega og áður en maður vissi af var maður lentur í kunnuglegu kompaníi, með blómasalanum - og svo fylgdi Albert okkur austur að Víkingsheimili. Albert forvitnaðist um þessi ströngu plön sem menn eru í og þessa miklu keyrslu alla laugardaga. "Já, maður stefnir á Parísarmaraþon í april" sagði blómasalinn. "Maður er í prógrammi." En þegar spurt var hvað ritarinn ætlaðist fyrir kom löng ræða um það að hann væri aðallega að þessu blómasalanum til stuðnings og uppbyggingar, því sjálfur stefndi ritarinn sosum ekki á neitt ákveðið. Hann hlypi með blómasalanum honum til móralsks stuðnings, vegna þess hversu blómasalinn væri laus við sjálfsaga og hætti til að hlífa sjálfum sér á hlaupum. Rifjaður var upp gærdagurinn, þegar Einar fór af tilviljun í heimsókn í fyrirtæki þar sem Þorramatur var á borðum í hádeginu. Á téðum vinnustað unnu nær eingöngu Portúgalar sem litu ekki við matnum. Neyddist því Einar til þess að úða í sig lundaböggum og hrútspungum. Í hlaupi kvöldsins var svo ráðist til inngöngu á Jómfrúna í Lækjargötu og þar snædd rauðspretta, henni skolað niður með hálfum lítra af bjór. Um kvöldið var svo ís og gúmmelaði af ýmsu tagi.
Þannig fórum við austurúr og skildu leiðir okkar fóstbræðra og Alberts við Víkingsvöll, við Einar stefndum í Kópavoginn, en fórum ekki Goldfinger heldur hina neðri leið sem Flosi hefur stundum farið. Yfir Breiðholtsbraut og stungum okkur beint niður í Elliðaárdal, þaðan undir brautina aftur og upp hjá gamla Fáksheimilinu og stefndum út á Miklubraut. Þar mættum við manni sem heitir Einar og er blómasali (NB Jörundur - var þetta klóninn?) Mættum mörgum hlaupurum og virðast hlaupahópar koma vel undan vetri. Er því vel til fundið að koma á sameiginlegum hlaupum hópa fyrsta laugardag hvers mánaðar, svo sem nánar er greint frá á Hlaupadagbókinni. Fyrsta slíka hlaup verður þreytt frá Laugardalslaug n.k. laugardag.
Ég var með orkudrykk með mér og saup drjúgum á honum á leiðinni. Hlaup gekk vel og vorum við bara sprækir, en stundum þurfti að rykkja í til þess að tempóið dytti ekki niður, aftur þetta með sjálfsaga og einbeitingu. Fórum Sæbrautina og svo Lækjargötu tilbaka. Það var svolítið napurt og því nauðsynlegt að halda vel áfram og ná það góðum hraða að maður kólnaði ekki. Enduðum í 17,5 km - en Einar hafði farið 4 áður en hlaup byrjaði svo að hann fór yfir 20 km í dag.
Í potti voru Ósk, Bjössi, blómasalinn og ritari - til umræðu kom leikurinn við Frakka og svo forval hjá stjórnmálaflokkunum fyrir sveitarstjórnarkosningar. Sumir ætla að hvíla á morgun, en ekki sakar að láta þess getið að í fyrramálið er hlaupið frá Laug kl. 10:10 skv. hefð - og er af nógu að taka í greiningum og frásögnum: leikurinn, kosningarnar, svindlmál hið nýja þar sem fjórir voru handteknir og sæta rannsókn fyrir ótrúlega framgöngu gegn þjóð sinni sem er að vinna sig út úr djúpri kreppu. Vel mætt!
Pistill Ritara | Breytt 31.1.2010 kl. 12:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2010 | 21:22
Hvað gerði blómasalinn á Jómfrúnni?
Farið rólega af stað enda fundu menn fyrir þörf að hita sig vel upp. Nema Frikki, sem bara æddi af stað og fékk sig öngvan veginn hamið. Hljóp fram og tilbaka og sótti okkur. Hann er á leið til Vínarborgar í fyrramálið og ætlar að ná leiknum við Frakka. Við tókum góða rispu frá Hofsvallagötu og alla leið að flugvelli til þess að kynna hinum nýju félögum helztu einkenni hlaupara í Hlaupasamtökunum: illkvittni, baktal, einelti og fleira í þeim dúr. Þeim leizt vel á. Jörundur og ritari rifjuðu upp bókatitlana sem þeir hefðu gefið blómasalanum, ritari gaf Flugu á vegg eftir Ólaf Hauk, en Jörundur gaf Hvernig á að forðast að verða geðveikur. Engar sögur fara af því hvort karlinn hafi lesið bækurnar.
Áfram í Nauthólsvík, þar var stanzað og spurt hvort áhugi væri fyrir sjóbaði - en einhvern veginn eyddist málið og við héldum áfram upp Hi_Lux. Hér rifjaði Jörundur upp daginn þegar komið var að Hi-Lux jeppanum. Upp löngu brekkuna og blómasalinn farinn að slá slöku við. Frikki sýndi vðleitni til þess að bíða eftir hinum slakari hlaupum, en það eru takmörk fyrir því hvað hægt er að bíða eftir fólki sem hefur boðið sjálfu sér í þorramat í öðrum fyrirtækjum og misst sig í mat.
Svo var þetta nú bara hefðbundið og farið hratt yfir, ritari náði að hanga í Federico frá Klambratúni og vestur úr. Á Sæbraut var haft á orði að nú mætti Kári mæta með kajakinn sinn, svo lygn var sjórinn við Sundin. Við fórum um Miðbæinn, Lækjargötu og Hljómskálagarð, sem lengir hlaup lítillega. Tekið vel á því í lok hlaups, farið hjá Þjóðminjasafni og Hótel Sögu. Eftir hlaup var okkur sagt að þegar blómasalinn kom í Lækjargötu hefði hann þotið eins og blá elding yfir Lækjargötuna og beint inn á Jómfrúna. Honum þótti ekkert leiðinlegt að upplýsa okkur í Potti að þar hefði hann slokað í sig heilum bjór og rauðsprettubrauðsneið með remolaði. Ef einhverjum dylst hvers vegna þessum hlaupara gengur svo illa að búa sig undir París - þarf frekari vitnanna við?
Nú brá svo við að tveir óhlaupnir mættu í Pott: Denni og Kári og höfðu báðir vondar afsakanir fyrir fjarveru, Kári í veseni með fólk sem var að hringja í hann, Denni eitthvað meiddur eftir meinleysislegt mánudagshlaup. Kári sagði okkur sögu af ölvuðum manni sem var að veizlu og kona sagði við hann: Þú ert ölvaður! Hann svaraði: Þú ert ljót. Og það sem meira er: á morgun verð ég edrú, en þú verður ennþá ljót. Ég veit ekki hvaða bókmenntagrein þessi saga tilheyrir, en slíkt má ræða á hlaupum næstu daga. Rætt um súrmeti, hval, skötu, og annað í þeim dúr.
Í fyrramálið verður sumsé farið snemma út, kl. 9:30 - og farið langt.