22.9.2008 | 15:27
Berlín - 1 vika
Síðasta vikan! Nú skiptir öllu máli að hvíla. Farið ekki yfir 30 km í vikunni. Mánudagsæfingin má missa sín ef þið hafið tekið æfingu um helgina. Það getur samt verið gott að hreyfa sig, hjóla, synda eða fara í góðan göngutúr. Gerið samt ekkert sem þið hafið ekki gert áður og takið því umfram allt rólega. Reynið að hvíla og sofa eins mikið þessa vikuna og þið getið og borðið reglulega. Farið ekki að standa í einhverjum stórframkvæmdum núna! Á miðvikudaginn er nauðsynlegt að taka svolítið á en þó ekki þannig að þið verðið eftir ykkur. Takið nokkra spretti á þægilegum hraða. Við leggjum áherslu á að æfing sé tekin á fimmtudagsmorgni á fastandi maga, eftir það byrjum við að hlaða okkur. Við leggjum einnig til að þið SKOKKIÐ á laugardeginum í Berlín. Það er gott að láta blóðið streyma aðeins eftir ferðalagið daginn áður og hvíld síðustu tvo daga.
Æfingaráætlun
Mánudagur: Rólegt, 6-8 km.
Miðvikudagur: Sprettir, 7-8 km. 3-8x300 sprettir (60-75s), -60s hvíld á milli.
Fimmtudagur: Morgunhlaup 8-12 km. Hlaupið áður en þið borðið morgunmat.
Laugardagur: Létt skokk í Berlín 3-4 km.
Sunnudagur: Maraþon.Flokkur: Frá þjálfurum | Breytt s.d. kl. 22:44 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.