Sunnudagur eins og þeir gerast beztir

Sunnudagur og helgistund hjá Hlaupasamtökum Lýðveldisins. Valinkunn góðmenni mættu til að hlaupa: Flosi, Ólafur Þorsteinsson, Þorvaldur, Magnús, Einar blómasali, Ólafur ritari og dr. Ingi. Vantaði bara Villa og Jörund, þá hefði stundin verið fullkomin. Veður með eindæmum fallegt, fjögurra stiga hiti, stilla og heiðskírt, en jafnframt glerhált á götum og stígum. Því varð að fara varlega í hlaupi dagsins, fara bara fetið. Í Útiklefa var þegar tekið við að segja sögur og leggja út fyrstu greiningar dagsins. M.a. vikið að sjónvarpsþættinum "Hrepparnir keppa" og fullyrt að búið væri að breyta þeim úr skemmtiefni í hörðustu alvöru og Gettu betur fyrir fullorðna. Þannig eru í útvarpi sendar hvatningar til þátttakenda og aldrei að vita nema Hlaupasamtökin finni tilefni til þess að senda keppendum á þeirra vegum kveðju á öldum ljósvakans.

Við fórum sumsé fetið í dag og virtist það falla öllum vel í geð að vera bara rólegir. Einar á leið í skírnarrveizlu austur fyrir fjall. Hann kvaðst hafa farið á Jómfrúna og pantað rétt númer 15. Þjónninn kannaðist ekkert við þann rétt. Ekki heldur númer 69 þegar Einar nefndi hann og virtist jafnvel á þeim buxunum að henda þessum manni út sem væri bara með dónaskap. En loks fékk Einar komið því út úr sér að hann vildi fá diverse smörrebröd, úrval rétta af ýmsu tagi. Ó. Þorsteinsson upplýsti að uppáhaldsréttur hans væri böfsteg med lög. Flutt tillaga um að Hlaupasamtökin efndu til ferðar á Jómfrúna einhvern sunnudaginn eftir hlaup og var gerður góður rómur að því.

Í Nauthólsvík varð á vegi okkar Gunnlaugur Júlíusson stórhlaupari sem hafði þau tíðendi að flytja að hann væri að fara að skrá sig í Comrade-hlaupið í suður-Afríku, sem er 90 km og fjölmennasta ofurhlaup í heimi. Hér var haldið áfram söguflutningi og greiningu og um líkt leyti sneri Einar við enda tímabundinn maður. Við áfram í kirkjugarð. Alltaf er það sérstök tilfinning að koma á þennan kyrrláta stað á sunnudagsmorgnum og höfðu menn á orði hvað stundin væri einstök.

Hlaupið var hefðbundið eftir þetta: Veðurstofa, Hlíðar, Klambratún, Hlemmur og urðu engin vandræði á þeim stað. Maggi og Þorvaldur voru horfnir er hér var komið, en við Flosi og nafni héldum áfram niður á Sæbraut og þá leið tilbaka. Glerhált var og mátti fara varlega til þess að fljúga ekki á hausinn. Þarf varla að taka fram að stoppað var á öllum hefðbundnum stöðum til þess að fara djúpar í greiningar eða persónufræði.

Í Útiklefa var rætt áfram um viðburði föstudagsins, sem sagt er frá á dv.is. Pottur þéttur svo sem við var að búast og var eftir því tekið að Baldur var kominn í hlutverk Vilhjálms Bjarnasonar að vanda um við og leiðrétta ranghermi í frásögnum Ó. Þorsteinssonar, en Ólafur var búinn að hlamma sér niður við súlu Villa, órækt merki um að ekki er búist við að hann láti sjá sig meira í potti eða á hlaupum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

...................órækt merki um að ekki er búist við að hann láti sjá sig meira í potti eða á hlaupum.

Ágætu Félagar í Hlaupasamtökum Lýðveldisins

Það er mikið víst að vb lætur ekki sjá sig meira á meðal dóna á hlaupum.

vb mun keppa í Útsvari laugardaginn 6. nóvember. Móttökur sem vb hefur fengið eftir slíka þátttöku hvetja vb ekki til þátttöku í hlaupum.

Dylgjur um að foreldarar og systkini vb séu illa gefin, að vb ástundi svindl í Útsvar og að vb geti ekki unnið Útsvarsþátt án þess að hafa BS í heimaliði og svo má lengi telja. Þetta og fleira geta aðrir skemmt sér við að tala og hlusta.

Að því ógleymdu að því hefur verið lýst yfir af óþ, í símtali, að vb geti ekki hlaupið upp brekku.

Vegni ykkur vel í rógburði. vb

Vilhjálmur Bjarnason (IP-tala skráð) 1.11.2009 kl. 14:14

2 identicon

Eg óska Vilhjálmi velgengi í komandi keppni. Allt tal um svindl af hans hálfu ber vott um öfund. Af hans hálfu er aldrei vitlaust gefið.

Jörundur Guðmundsson (IP-tala skráð) 1.11.2009 kl. 21:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband