7.6.2007 | 11:26
Hlaupasamtökin fara í loftið.
Hlaupasamtök Lýðveldisins, einnig þekkt undir nafninu "Vesturbæjarhópurinn", eru hópur vaskra meyja og sveina sem hlaupa 3-4 sinnum í viku frá Vesturbæjarlaug. Tilgangur hlaupanna er að byggja upp þrek og þol, bæta heilsu og laga ástand sálar. Þeim er einnig ætlað að stuðla að upplýstri umræðu um ýmis mál er á góma ber hverju sinni, fræðast um náungann, efla málþroska og breiða út þjóðlegan fróðleik. Þátttaka er öllum frjáls, farið er mishratt yfir og áhersla ekki lögð á að ljúka hlaupi sem fyrst. Hlaupi hefur af ónefndum félögum í hópi vorum verið líkt við kynlíf, "það er best meðan á því stendur".
Ætlunin með þessari bloggsíðu er að kynna framsækið starf Hlaupasamtakanna, birta myndir og frásagnir af hlaupum og láta vita af viðburðum sem samtökin standa fyrir.
Flokkur: Almennt skraf | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Tenglar
Hlaupaleiðir
- 11.4 km hlaupaleið fyrir golfvöll og nálægt Gróttu 11.4 km hlaupaleið fyrir golfvöll og nálægt Gróttu
- 19.6 km Sextíuogníu plúsplús 19.6 km Sextíuogníu plúsplús
- 18.9 km Sextíuogníu plús 18.9 km Sextíuogníu plús
- 17.4 km Stokkurinn 17.4 km Stokkurinn
- 14.8 km Þriggja brúa hlaup - plús 14.8 km Þriggja brúa hlaup - plús
- 14.3 km Þriggja brúa hlaup 14.3 km Þriggja brúa hlaup
Ljósmyndir
Nýjustu færslur
- 16.1.2022 Sögulegur Sunnudagur
- 25.7.2021 Hlaupið í kyrrþey
- 11.4.2021 Hlaupið á sunnudegi
- 13.12.2020 Glæsileg endurkoma
- 24.11.2020 Hlaupið í garðinum
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Athugasemdir
Þetta er tvímælalaust besta blogsíða lýðveldisins. Ég tárast af tilhugsuninni um að hafa hlaupið með svona glæstu félagi um skeið á síðustu öld.
Gylfi Magnússon (IP-tala skráð) 7.6.2007 kl. 11:39
Það var alveg eftir ykkur í mannvonskuarmi Hlaupasamtaka lýðveldisins að leggja svona þungar þrautir fyrir mann. Maður er beðinn um að leggja saman tvær tölur og önnur þeirra er meira að segja tveggja stafa. Hvað eru menn eiginlega að fara?
Flosi Kristjánsson (IP-tala skráð) 7.6.2007 kl. 16:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.