Hlaupasamtökin fara í loftið.

Hlaupasamtök Lýðveldisins, einnig þekkt undir nafninu "Vesturbæjarhópurinn", eru hópur vaskra meyja og sveina sem hlaupa 3-4 sinnum í viku frá Vesturbæjarlaug. Tilgangur hlaupanna er að byggja upp þrek og þol, bæta heilsu og laga ástand sálar. Þeim er einnig ætlað að stuðla að upplýstri umræðu um ýmis mál er á góma ber hverju sinni, fræðast um náungann, efla málþroska og breiða út þjóðlegan fróðleik. Þátttaka er öllum frjáls, farið er mishratt yfir og áhersla ekki lögð á að ljúka hlaupi sem fyrst. Hlaupi hefur af ónefndum félögum í hópi vorum verið líkt við kynlíf, "það er best meðan á því stendur".

Ætlunin með þessari bloggsíðu er að kynna framsækið starf Hlaupasamtakanna, birta myndir og frásagnir af hlaupum og láta vita af viðburðum sem samtökin standa fyrir. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er tvímælalaust besta blogsíða lýðveldisins. Ég tárast af tilhugsuninni um að hafa hlaupið með svona glæstu félagi um skeið á síðustu öld. 

Gylfi Magnússon (IP-tala skráð) 7.6.2007 kl. 11:39

2 identicon

Það var alveg eftir ykkur í mannvonskuarmi Hlaupasamtaka lýðveldisins að leggja svona þungar þrautir fyrir mann. Maður er beðinn um að leggja saman tvær tölur og önnur þeirra er meira að segja tveggja stafa. Hvað eru menn eiginlega að fara?

Flosi Kristjánsson (IP-tala skráð) 7.6.2007 kl. 16:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband