Fámennt á föstudegi

Þessi voru mætt í hlaup dagsins frá Vesturbæjarlaug: Þorvaldur, Magnús, Flosi, Ólafur ritari, Rúnar og Anna Jóna, jákvæður sálfræðingur. Af þessari ástæðu var umgjörðin höfð einföld og menn hlupu af stað án þess að viðhafa langan formála fyrst. Hlaupið afar hægt inn í Nauthólsvík, þar sem ritari og Rúnar skelltu sér í sjó, Anna ætlaði styttra, en hinir héldu áfram og luku hefðbundnu á svakalegu tempói, mér heyrðist Flosi nefna töluna 4:40 á lokasprettinum.

Í fyrramálið verður farið langt, hlaup hefst við VBL kl. 9:30. Í gvuðs friði, ritari.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Flosi Kristjánsson

Tveir gamlir drengir, upprunnir úr 107, af Hjarðarhaga 19 og Dunhaga 19, héldu uppi tempói af hálfu Hlaupasamtaka Lýðveldisins. Ónefndur tannlæknir, sem taldi sig heillum horfinn og gagnslausan til hlaupa, reyndist ótrúlega sprækur og hélt okkur hinum við efnið allt vestur að Landakotshæð. 

Formaður okkar til Lífstíðar, var staðsettur við Nýlenduvöruverslun Samtakanna að Hofsvallagötu, þá er við runnum þar hjá, ræðandi við Málsmetandi Einstakling, hrópaði til okkar Þorvaldar að við værum glæsilegir og fallegir. Umsögn þessi má fyrir alla muni ekki berast til Saurblaðs Alþýðunnar (DV) hvar hún yrði næsta öugglega af-flutt.  Hlaupið var hið fegursta!

Flosi Kristjánsson, 17.7.2009 kl. 21:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband